Fréttir

Blýantsteikning eftir Sigurð Guðmundsson málara afhent safninu

Gjöf frá Minjum og sögu - vinafélagi Þjóðminjasafns Íslands á 30 ára afmæli félagsins

17.12.2018

Stjórn Minja og sögu - vinafélags Þjóðminjasafns Íslands færði safninu að gjöf á aðalfundi félagsins 15. desember sl. blýantsteikningu af Árna Thorsteinssyni (1828-1907) landfógeta. Teikningin er frá árinu 1858 og er eftir Sigurð Guðmundsson (1833-1874) málara. Sigurður Guðmundsson var forvígismaður að stofnun Forngripasafnsins árið 1863 sem síðar varð Þjóðminjasafn Íslands. Mannamyndir Sigurðar Guðmundssonar eru einstakar heimildir um 19. öldina og er mikill fengur að frumgerð myndarinnar til varðveislu í safninu. Teikningin af Árna Thorsteinssyni var gefin safninu í tilefni af 30 ára afmæli félagsins og vegna aldarafmælis fullveldisins. 

Minjar og saga, vinafélag Þjóðminjasafnsins, hefur starfað frá árinu 1988. Markmið þess er að styrkja starfsemi Þjóðminjasafnsins á ýmsan hátt og vekja skilning á mikilvægi þess að vel sé búið að helsta menningarsögulega safni þjóðarinnar. Helstu verkefni vinafélagsins eru að leita leiða til að afla Þjóðminjasafninu merkra muna sem álitið er að best séu varðveittir í safninu vegna menningarsögulegs gildis þeirra. Einnig greiðir félagið fyrir sérstökum rannsóknarverkefnum þar sem því verður við komið. Félagið efnir til fyrirlestra fræðimanna um fornleifar og aðrar þjóðminjar. Jafnframt hefur það staðið fyrir skoðunarferðum undir leiðsögn sérfræðinga á merka menningarsögulega staði.

Í stjórn félagsins eru þau Stefán Einar Stefánsson (ses@mbl.is), Margrét Hallgrímsdóttir, Stefán Árni Auðólfsson, Kristján Garðarsson og Svanhvít Friðriksdóttir. Í varastjórn sitja Sverrir Kristinsson og Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir.

Aðild að vinafélaginu Minjum og sögu er opin öllum og er félagsgjaldið 3.000 kr. á ári. Skráning í vinafélagið fer fram á síðu safnsins: http://www.thjodminjasafn.is/vinafelag

Á myndinni eru f.v. Stefán Árni Auðólfsson, Sverrir Kristinsson, Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður, Stefán Einar Stefánsson og Kristján Garðarsson.