Fréttir
  • Drykkjarhorn

Safnaþrennan: Vel heppnað verkefni verður námskeið í öllum framhaldsskólum.

23.3.2023

Hvernig er hægt að vekja áhuga ungs fólks á samfélagi, listum og náttúru í gegnum söfn? Hvernig má nýta safnheimsóknir til að hvetja nemendur til sjálfstæðra vinnubragða og túlkunar?

Safnkennarar höfuðsafnanna þriggja, Þjóðminjasafns Íslands, Listasafn Íslands og Náttúruminjasafns Íslands og kennari menningarlæsis í Tækniskólanum tóku höndum saman um að móta námsleið sem fella má inn í til dæmis menningarlæsisáfanga eða lífsleikniáfanga í framhaldsskóla. Verkefnið var prufukeyrt undir vinnuheitinu Safnaþrennan í janúar og febrúar 2023 með um 15 nemendum.

Svo vel þótti til takast að námsleiðin verður í framhaldi boðin í öllum framhaldsskólum landsins.

Markmið námsleiðarinnar var að efla náttúru- og menningarlæsi, gagnrýna hugsun og sjálfstæði nemenda. Að nýta höfuðsöfnin sem námsvettvang og hvetja til skapandi úrvinnslu er kjörin leið til að vinna að þessum markmiðum.

Safnathrenna2

 

Safnkennarar tóku saman hugtakalista með orðum sem tengt geta sýningar safnanna þriggja, til dæmis: spor, eldvirkni, mynstur, jarðvegur, hið ósýnilega og rætur. Þannig gátu nemendur farið á milli og leitað að efnivið út frá sama hugtakinu á öllum söfnunum. Mikið var lagt upp úr sjálfstæði nemenda og verkefnin áttu að vera persónuleg umfjöllun, tenging við upplifun og skilning. Að leggja af stað án þess að vita hver niðurstaðan verður, krefst skapandi hugsunar, bæði hjá nemendum og kennurum. Niðurstöður eftir prufukeyrslu voru afgerandi jákvæðar en miklum meirihluta nemendanna þótti heimsóknirnar á söfnin og verkefnavinnan skemmtileg, fjölbreytt og áhugaverð. 

Safnathrenna1

Flest ætla að heimsækja safn aftur fljótlega sem bendir til að söfnin hafi skilið eftir jákvæð hugrenningatengsl og upplifun hjá nemendum. 

160_1_text