Brúðkaup á Borgarfirði eystri
APRÍL 2021
Ljósmyndari: óþekktur
Lpr-2020-30-1
Bakkagerði, eða Borgarfjörður eystri eins og við þekkjum þéttbýlið frekar í dag, varð löggiltur verslunarstaður árið 1895.1 Ári áður hafði verið byggt þar verslunarhús og nefnt Rauðaskúr, en það hús fauk í aftakaveðri árið 1938.2 Eftir það byggjast fleiri hús á staðnum. Húsið fyrir miðri þessari mynd nefnist Kaupfélagshúsið og var byggt árið 1897, en það stendur enn í dag.
Myndin er einstök fyrir þær sakir að eiginlega ekkert er til af myndum frá Borgarfirði eystri frá því fyrir miðja síðustu öld. Myndin er merkt 21. júlí 1901 og það ár eru 398 manneskjur skráðar með búsetu í Borgarfjarðarhreppi, en aðeins hluti býr í Bakkagerði. 3 Ekki er víst hverju er verið að fagna, en 21. júlí þetta árið bar upp á sunnudegi. Á myndinni sést prúðbúið fólk saman komið aftan við Kaupfélagshúsið. Framhlið hússins hefur vísað að sjó enda samgöngur mest þaðan. Tvær sólhlífar sjást á lofti. Þá má sjá glitta í árabát í fjörunni á milli húsanna. Tvö pör dansa og hópur fólks stendur og situr í kring; hugsanlega er um brúðkaup að ræða. Sama ár og myndin var tekin var kirkjan í Bakkagerði vígð á fyrsta sunnudegi í aðventu.4 Tvö brúðkaup eru skráð í Desjarsókn á Borgarfirði árið 1901. Þá voru annars vegar gefin saman Óli Ólafsson og Ólafía Jónatansdóttir sem eru skráð hafa gift sig 17. júní. Hins vegar Magnús Þorsteinsson og Sveinbjörg Jónsdóttir. Við seinna brúðkaupið er því miður ekki dagsetning, en það má leiða líkum að því að þarna séu hátíðarhöld vegna þess.5
Gamla pakkhúsið hægra megin á myndinni er þar sem í dag stendur frystihús staðarins. Áin sem sést renna til sjávar vinstra megin á myndinni heitir Bakkaá. Fáni blaktir á þaki hússins og vinstra megin við hann má sjá í skip á legu. Á árunum 1901 til 1907 rak Þorsteinn Jónsson verslun í húsinu. Síðan hefur verslun verið stunduð í húsinu af ýmsum aðilum allt til dagsins í dag þar sem KHB Brugghús er nú með starfsemi sína.6
Kristín Halla Baldvinsdóttir
1) Íslandshandbókin, bls. 563.
2) Saga Borgarfjarðar eystri, bls. 26.
3) https://www.mbl.is/greinasafn/grein/212756/
4) Íslandshandbókin, bls. 563.
5) Prestþjónustubók Desjarmýri í Borgarfirði 1850-1906, bls. 193.
6) https://www.khb-brugghus.is/um-okkur