Viðburðir framundan

Bókverkasmiðja

  • 8.2.2019, 18:00 - 22:00, Safnahúsið við Hverfisgötu

Hið færanlega prentverkstæði Prent & vinir, er uppsett í gamla lestrarsalnum í Safnahúsinu! Komdu og prófaðu að prenta þitt eigið bókverk. 

Til að fá innblástur skaltu skoða sérsýninguna Bókverk á þriðju hæð Safnahússins. Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn sýnir þar ýmis áhugaverð dæmi úr safneign sinni, um skapandi prentverk, bókband og tilraunir með form bókarinnar. Á verkstæðinu í lestrarsal er svo hægt að blaða í listrænum bókum og fá frekari hugmyndir. Öll aðstaða, efni og verkfæri til prentsköpunar á staðnum. Myndlistarmennirnir Leifur Ýmir Eyjólfsson og Sigurður Atli Sigurðsson leiðbeina þér um mismunandi tækni og aðferðir.