Viðburðir framundan

Með ungum augum – leikin leiðsögn Leynileikhússins um nýjar hátíðarsýningar og grunnsýningu Þjóðminjasafns Íslands

  • 1.12.2018, 13:00 - 13:30, Þjóðminjasafnið á Suðurgötu
  • 1.12.2018, 15:00 - 15:30, Þjóðminjasafnið á Suðurgötu
  • 2.12.2018, 13:00 - 13:30, Þjóðminjasafnið á Suðurgötu
  • 2.12.2018, 15:00 - 15:30, Þjóðminjasafnið á Suðurgötu

Hvernig sjá ung augu menningararf Íslands út frá völdum gripum fyrri alda á sýningum Þjóðminjasafnsins? Í hvaða áttir beina túlkendur á unglings- og barnsaldri hugsun gesta um siði og venjur áður fyrr? 

Til að komast að þessu eru forvitnir gestir á öllum aldri velkomnir í leikna leiðsögn fjögurra ungra sviðslistanema hjá Leynileikhúsinu. Gestum boðið að ganga í gegnum grunnsýningu Þjóðminjasafns Íslands Þjóð verður til. Menning og samfélag í 1200 ár og hátíðarsýninguna Kirkjur Íslands í fylgd ungra, skapandi huga.

Leiðsögnin er ókeypis og öllum opin. Hún hefst kl. 13 laugardaginn 1. desember og er endurtekin sama dag kl. 15. Leiðsögnin er einnig í boði sunnudaginn 2. desember kl. 13 og 15.