Viðburðir framundan

Unnar Örn, myndlistarmaður, veitir leiðsögn

  • 17.2.2019, 14:00 - 14:45, Safnahúsið við Hverfisgötu

Nú stendur yfir í Safnahúsinu sérsýningin Bókverk sem Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn setti upp í fyrra í tilefni af 200 ára afmæli safnsins. Myndlistarmaðurinn Unnar Örn fræðir gesti leiðsagnarinnar um efni sýningarinnar en hann vann sýninguna í samvinnu við starfsfólk Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns.

Innan Landsbókasafnsins er nú aukin áhersla á sérstöðu bókverka í safnkosti. Á þessari sýningu bókverka eru dregin fram áhugaverð dæmi um skapandi prentverk, bókband og tilraunir með form bókarinnar úr safneign Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns. Leitað er fanga allt aftur til loka 19. aldar og eru verkin sett í samhengi við bókagerð listafólks fram til dagsins í dag. Dieter Roth (1930-1998), sem var einn af frumkvöðlum bókverkagerðar í heiminum, vann sín fyrstu bókverk hér á landi í kringum 1957 og ruddi brautina fyrir bókverkagerð íslensks listafólks.

Verið öll velkomin.
Ókeypis aðgangur er að leiðsögninni.

Sýningin er opin til maíloka.