Framhaldsskólar

Lífgað upp á hvunndaginn: Listir og handverk fyrri alda

  • Þjóðminjasafnið á Suðurgötu

Grunnsýning safnsins er rannsökuð með sérstakri áherslu á handverk og listir. Skoðaðir eru kirkjugripir, nytjagripir og listgripir á sýningunni og þeir settir í samhengi með tilliti til samfélagsgerðar hverju sinni. 

Safnfræðsla fyrir framhaldsskólahópa felur í sér leiðsagnir um grunnsýningu Þjóðminjasafnsins Þjóð verður til - menning og samfélag í 1200 ár út frá ólíkum sjónarhornum sem henta mismunandi fögum eða áföngum. 

Einnig geta kennarar á framhaldsskólastigi komið með nemendur á eigin vegum á sýningar Þjóðminjasafns Íslands á Suðurgötu 41. Kennarar mega einnig senda nemendur á sýningar á eigin vegum til þess að vinna fyrir fram skilgreind verkefni sem þeir standa skil á gagnvart kennara. 

Hægt er að bóka heimsókn framhaldsskóla á bókunarsíðu Þjóðminjasafns Íslands. Nánari upplýsingar: kennsla@thjodminjasafn.is eða hafið samband í síma 5302255 eða 5302254.