Húsasafn
  • Bæjardyr á Reynistað

Bæjardyr á Reynistað

  • Opið daglega frá kl. 8-18. Gestir heimsækja Bæjardyr á eigin ábyrgð.

Á Reynistað í Skagafirði er bæjardyrahús sem er það eina sem varðveist hefur af bæ þeim sem staðarhaldarinn Þóra Björnsdóttir lét reisa eftir mikinn bruna sem þar varð árið 1758. Í bæjardyrunum getur að líta eitt af fáum dæmum um timburgrind frá 18. öld. Húsið er opið gestum á eigin ábyrgð daglega 8-18. Vinsamlegast gangið vel um.

Þóra var ekkja Halldórs Brynjólfssonar Hólabiskups og hélt hún Reynistaðarklaustursumboð að manni sínum látnum 1753 og til dauðadags 1767.

Bæjardyraportið er með stafverksgrind af þeirri gerð sem víða tíðkaðist hér á landi á 18. öld þegar áhrifa bindingsverks var tekið að gæta. Öll smíði ber þess vitni að vel hafi verið til hússins vandað í sinni tíð og eru margir viðanna prýddir strikum.

Gömlu bæjarhúsin á Reynistað voru tekin niður skömmu eftir 1935 en þessu húsi var leyft að standa áfram. Um 1960 var það flutt til og byggð utan um það steinsteypt skemma. Í henni var portið fram til 1999 en þá voru viðirnir teknir niður og lagfærðir. Bæjardyraportið var síðan reist skammt frá upphaflegum stað og að því hlaðnir torfveggir og torf sett á þakið.

 Húsið hefur verið í vörslu Þjóðminjasafns Íslands frá árinu 1999.