Þjóð verður til - Menning og samfélag í 1200 ár. Velkomin á Safnanótt!
Á Safnanótt er upplagt að skoða grunnsýningu safnsins Þjóð verður til - menning og samfélag í 1200 ár.
Safnanótt stendur frá kl. 18-23. Frítt inn.
Dagskrá Safnanætur í Þjóðminjasafninu:
KLUKKAN 18-21:
Kvöldvaka við baðstofuna með kvæðamannafélaginu Iðunni
Á Safnanótt býðst gestum Þjóðminjasafnsins að hverfa aftur til 19. aldar og upplifa kvöldvöku þar sem félagsfólk Kvæðamannafélagsins Iðunnar sér um afþreyinguna. Dagskráin hefst með kvæðalagaæfingu þar sem ungum sem öldnum verður kennt að kveða nokkar stemmur við vísur sem höfða til barna. Síðan verður dagskráin óslitin og afar fjölbreytt, kveðskapur, rímur og vísur fluttar af kvæðamönnum og -konum, einnig börnum, sagnaþulur segir sögu, vísur og kvæði lesin upp, söngur og lítið hagyrðingamót.
Sjá nánar hér.
KLUKKAN 20-21:
Sérfræðileiðsögn með Lilju Árnadóttur um sýninguna Með verkum handanna
Viðburðurinn hefst í fyrirlestrarsal safnsins þar sem Lilja Árnadóttir mun fjallar um verkin á sýningunni Með verkum handanna. Að því loknu fylgir hún gestum í Bogasal og skoðar verkin með þeim. Á sýningunni Með verkum handanna eru öll íslensku refilsaumsklæðin sem varðveittust á Íslandi.
Sjá nánar hér.
KLUKKAN 21:30-23:00:
Ef garðálfar gætu talað: Bjössi trúbador spilar og listakonurnar taka á móti gestum
Bjössi trúbador - Bjössi greifi - spilar fyrir gesti sýningarinnar milli kl. 21:30 og 22:30, sannkölluð sumar- og útilegustemning í febrúar. Listakonurnar taka á móti gestum og spjalla um sýninguna frá kl. 21 til kl. 23.
Ljósmyndasýningin Ef garðálfar gætu talað er heimild um hjólhýsabyggðina á Laugarvatni sem nú er liðin undir lok. Einstök heimild um byggð sem var einstök á landsvísu.
Sjá nánar hér
TIL KLUKKAN 22:00:
Kaffihúsið verður opið: Léttar veitingar, kaffi, gos, bjór og léttvín
TIL KLUKKAN 23:00:
Safnbúðin verður opin - full af sérhönnuðum vörum með sögu
Við hlökkum til að sjá ykkur - Frítt á alla viðburði - Verið öll velkomin