Sérhannaðar vörur með sögu Safnbúð opin á Safnanótt
Safnbúðin er opin á Safnanótt frá kl. 18 til 23.
Í Safnbúðinni er að finna fallegar gjafavörur sem endurspegla sýningar og safnkostinn. Þar færðu vandaðar eftirmyndir af munum sem fundist hafa í jörðu og eru til sýnis á safninu, meðal annars íslenska skartgripi sem njóta mikilla vinsælda, ásamt galdrastöfum og töfrarúnum. Í búðinni er að finna úrval vandaðra bóka, meðal annarra sérútgáfur Þjóðminjasafnsins.
Dagskrá Safnanætur í Þjóðminjasafninu:
KLUKKAN 18-21:
Kvöldvaka við baðstofuna með kvæðamannafélaginu Iðunni
Á Safnanótt býðst gestum Þjóðminjasafnsins að hverfa aftur til 19. aldar og upplifa kvöldvöku þar sem félagsfólk Kvæðamannafélagsins Iðunnar sér um afþreyinguna. Dagskráin hefst með kvæðalagaæfingu þar sem ungum sem öldnum verður kennt að kveða nokkar stemmur við vísur sem höfða til barna. Síðan verður dagskráin óslitin og afar fjölbreytt, kveðskapur, rímur og vísur fluttar af kvæðamönnum og -konum, einnig börnum, sagnaþulur segir sögu, vísur og kvæði lesin upp, söngur og lítið hagyrðingamót.Sjá nánar hér.
KLUKKAN 20-21:
Sérfræðileiðsögn með Lilju Árnadóttur um sýninguna Með verkum handanna
Viðburðurinn hefst í fyrirlestrarsal safnsins þar sem Lilja Árnadóttir mun fjallar um verkin á sýningunni Með verkum handanna. Að því loknu fylgir hún gestum í Bogasal og skoðar verkin með þeim. Á sýningunni Með verkum handanna eru öll íslensku refilsaumsklæðin sem varðveittust á Íslandi.
Sjá nánar hér.
KLUKKAN 21:30-23:00:
Ef garðálfar gætu talað: Bjössi trúbador spilar og listakonurnar taka á móti gestum
Bjössi trúbador - Bjössi greifi - spilar fyrir gesti sýningarinnar milli kl. 21:30 og 22:30, sannkölluð sumar- og útilegustemning í febrúar. Listakonurnar taka á móti gestum og spjalla um sýninguna frá kl. 21 til kl. 23.Ljósmyndasýningin Ef garðálfar gætu talað er heimild um hjólhýsabyggðina á Laugarvatni sem nú er liðin undir lok. Einstök heimild um byggð sem var einstök á landsvísu.
Sjá nánar hér
TIL KLUKKAN 22:00:
Kaffihúsið verður opið: Léttar veitingar, kaffi, gos, bjór og léttvín
TIL KLUKKAN 23:00:
Þjóð verður til - menning og samfélag í 1200 ár
Á Safnanótt er tilvalið að rifja upp kynni við grunnsýningu Þjóðminjasafnsins, alltaf er eitthvað nýtt að sjá.Við hlökkum til að sjá ykkur - Frítt á alla viðburði - Verið öll velkomin