Örnámskeið í refilsaumi í apríl og maí. Heimilisiðnaðarfélagið. 4.5.2024 10:00 - 13:30 Þjóðminjasafnið á Suðurgötu

Uppselt hefur verið á öll námskeiðin sem haldin hafa verið. Hvert námskeið er eitt skipti, hefst kl. 10.00 og stendur til kl. 13.30. Útsaumspakki fylgir og þátttakendum er boðið á sýninguna Með verkum handanna.

 

Barnadagskrá: Teiknismiðja og tóvinna 5.5.2024 13:00 - 15:00 Þjóðminjasafnið á Suðurgötu

Á barnaviðburðum vetrarins hafa safnkennarar einbeitt sér að handverki í tengslum við sýninguna Með verkum handanna, nú er komið að tóvinnu.

 

Leiðsögn með Lilju Árnadóttur. Síðasti sýningardagur. 5.5.2024 14:00 - 15:00 Bogasalur - Þjóðminjasafnið Suðurgötu

Þann 5. maí, á síðasta sýningardegi, verður Lilja Árnadóttir sérfræðingur með leiðsögn um sýninguna.