Fyrirsagnalisti

Sögustaðir - í fótspor W.G. Collingwoods 13.5.2010 - 23.1.2011 Myndasalur - Þjóðminjasafnið Suðurgötu

Á sýningunni má sjá ljósmyndaverk eftir Einar Fal Ingólfsson, sem unnin eru með hliðsjón af vatnslitamyndum, teikningum og ljósmyndum sem breski myndlistarmaðurinn og fornfræðingurinn William Gershom Collingwood málaði og tók af stöðum sem koma fyrir í Íslendingasögunum á tíu vikna ferðalagi um Ísland sumarið 1897.

Lesa meira
 

Klippt og skorið - um skegg og rakstur 13.5.2010 - 31.12.2010 Hornið - Þjóðminjasafnið Suðurgötu

 

Ása G. Wright - frá Íslandi til Trinidad 1.12.2009 - 30.5.2010 Þjóðminjasafnið á Suðurgötu

Á sýningunni getur að líta hluta þeirra gripa sem Ása Guðmundsdóttir Wright gaf safninu á 7. áratug síðustu aldar. Margir gripanna hafa ekki verið sýndir áður.

Lesa meira
 

Endurfundir 31.1.2009 - 31.12.2010 Myndasalur - Þjóðminjasafnið Suðurgötu

Fornleifasýning fyrir alla fjölskylduna. Á árunum 2001 til 2005 styrkti Kristnihátíðarsjóður fornleifauppgröft á Gásum, Hólum, Keldudal, Kirkjubæjarklaustri, Reykholti, Skálholti, Skriðuklaustri og Þingvöllum. Á sýningunni var sýnt úrval þeirra fjölmörgu gripa sem fundust í uppgröftunum.

Lesa meira