Eldri sýningar

Fyrir ári

  • 16.1.2010 - 8.3.2010, Þjóðminjasafnið á Suðurgötu

Sýning á gripum sem komu við sögu í mótmælunum í kjölfar efnahagshrunsins 2008.

Á sýningunni eru meðal annars mótmælaspjöld, ílát, dreifibréf, gashylki og fleira sem ýmist kom frá almenningi eða safnaðist á vettvangi. Ástæða þess að þessir gripir eru sýndir nú á meðan við stöndum enn í hringiðu atburðanna er að safnið vill leita álits hjá almenningi á því sem safnast hefur. Hvernig speglar safnið samtímann með þessum gripum? Eru þetta hlutirnir sem segja söguna?

Öll erum við sérfræðingar í samtíma okkar og nú kallar safnið eftir aðstoð við að velja hvað á að varðveita til framtíðar. Hvað sýnir atburði áranna 2008 - 2009?

Það er ekki alltaf auðvelt að nota gripi til að varpa ljósi á söguna en hlutverk safna er engu að síður að varðveita heimildir um tíðaranda og atburði. Í Þjóðminjasafninu má til dæmis finna höggstokk þar sem nafngreint fólk var gert höfðinu styttra, kórkápu Jóns Arasonar, kaffikvörn Eggerts og Bjarna og húsgögn Jóns Sigurðssonar. Allt hlutir sem bera ákveðnu fólki og atburðum vitni.

Gripir eru varðveittir fyrir framtíðina svo hægt verði að rannsaka þá og sýna eftir 2, 50 eða 350 ár. Nú er unnið að söfnun gripa sem endurspegla þá tíma sem við lifum og gestir dagsins í dag eru beðnir að segja álit sitt á því sem safnað hefur verið til að gefa sem besta mynd af tíðarandanum.