Safnið í sófann

Mjólkurpósturinn

  • Mismunandi mjólkurumbúðir

Á tímum þar sem margir fá matvörur sendar heim að dyrum í stað þess að fara í verslanir er gaman að líta til baka til þess tíma þegar mjólk var á sumum stöðum á landinu flutt heim að dyrum með mjólkurpóstinum. Í þjóðháttasafni Þjóðminjasafnsins eru frásagnir af ungum drengjum sem voru sendir í sveit á sumrin og störfuðu þar meðal annars sem mjólkurpóstar.

Einn segir frá því þegar hann var mjólkurpóstur og byrjaði hvern morgun á því að mjólka kýrnar, fylla glerflöskur með mjólk, setja flöskurnar í ullarsokka og koma þeim fyrir á klifbera á hesti. Síðan flutti hann mjólkina fótgangandi með hestinn í taumi til Þingeyrar sem var um 5 kílómetra leið. Þegar komið var í þorpið setti hann flöskurnar við útidyr viðskiptavina og tók tómar flöskur til baka. Stundum fékk hann hressingu hjá húsmæðrunum t.d. mjólk og kleinur. Hann minnist þessara daga sem indælla tíma þó sumir þeirra hafi eflaust verið bæði erfiðir og langir.

Annar segir frá því að hafa farið í sveit 9 ára gamall og fengið starf mjólkurpósts. Hann flutti mjólkina til Ísafjarðar og skilaði henni þar til viðskiptavina, flestir fengu mjólkina í glerflöskum nema hvað á sjúkrahúsið og elliheimilið var farið mjólkina í 20 lítra brúsum. Mjólkurferðin tók vanalega um 4-5 klukkustundir og gat verið erfið fyrir 9 ára gamlan dreng.

Mjólkurumbúðir hafa tekið nokkrum breytingum síðan mjólk var sótt í brúsa og/eða glerflöskur líkt og hér eru myndir af. Margir muna eflaust eftir mjólkurhyrnunum sem teknar voru í notkun upp úr miðri 20. öld. Af þeim tóku við hinar klassísku mjólkurfernur sem þó hafa breyst og þróast á síðustu árum.  

         Mjólkurhyrnur frá Mjólkursamsölunni. Mjólkurhyrnur komu á markaðinn um miðja 20. öld og voru í notkun þar til fernurnar tóku við. Óskráð.

         Mjólkurfernur utan af nýmjólk og léttmjólk. Í tilefni 50 ára afmælis lýðveldis á Íslandi var efnt til samkeppni auglýsingastofa um útlit mjólkurferna. Þjóðminjasafni bauðst að kynna 24 valda muni og minjastaði á umbúðum sumarið 1994. Gunnar Karlsson hjá Hvíta húsinu teiknaði myndirnar. Eintak allra fernanna er varðveitt í Þjóðminjasafninu

         Tvær gerðir af mjólkurfernum frá Mjólkursamsölu Reykjavíkur

 

Glerflöskur merktar Mjólkursamsölunni.  nr. Á 7206, 7210, 7211

 

         Mjólkurbrúsar úr áli og blikki. nr. 2011-20-3 og 1988-5

 

      Tvær glerflöskur í burðargrind. Nr. 1988-46, 1988-1, 1988,2