Þjóðháttasafn

Þjóðháttasafn nýtir styrk frá Uppbyggingarsjóði EES/EEA Grants til að safna frásögnum Íslendinga af pólskum uppruna
Spurningaskráin verður birt á heimasíðu Þjóðminjasafnsins á næstu vikum. Margir Íslendingar eru af pólskum uppruna og Þjóðháttasafnið vill safna og varðveita frásagnir þeirra af kynnum þeirra við Ísland. Fólki verður gert mögulegt að hlaða upp myndum með könnuninni.
Lesa meira
Þjóðháttasöfnun
Síðan um 1960 hefur Þjóðminjasafn Íslands safnað skipulega heimildum um lífshætti á Íslandi með því að semja spurningaskrár og senda út til fólks. Á aldarafmæli Þjóðminjasafnsins, árið 1963, kynnti menntamálaráðherra stofnun sérstakrar þjóðháttadeildar.
Lesa meira
Innan girðingar og utan. Söfnun frásagna um varnarliðið á Miðnesheiði.
Byggðasafn Reykjanesbæjar og Þjóðminjasafn Íslands safna frásögnum um varnarliðið á Miðnesheiði og áhrif þess á líf og störf Íslendinga. Markmiðið er að safna heimildum um persónulega upplifun fólks.
Lesa meira
Hvað er í matinn? Sjálfbært, heilsusamlegt mataræði
Í tilefni af Veganúar 2022 sendir Þjóðminjasafn Íslands í samstarfi við Háskóla Íslands út spurningaskrá sem ber heitið Hvað er í matinn? Sjálfbært, heilsusamlegt mataræði.
Lesa meira
Lífið á tímum kórónuveirunnar
Mikilvægt er að safnað verði heimildum um daglegt líf fólks meðan á kórónuveirufaraldrinum stendur, reynslu þess og upplifanir, á þessum afar sérstæðu tímum.
Lesa meira
Þjóðminjasafn Íslands safnar frásögnum um ísbirni
„Ísbjarnarsögur“ er heiti á nýrri spurningaskrá sem Þjóðminjasafn Íslands sendir út um þessar mundir. Tilgangurinn með henni er að safna minningum fólks um ísbirni með áherslu á að rannsaka ferðir þeirra til Íslands í sögulegu og samtímalegu samhengi.
Lesa meira
Þjóðminjasafn Íslands leitar eftir frásögnum um laufabrauðsgerð
Þjóðminjasafn Íslands leitar eftir frásögnum um laufabrauðsgerð, eigin reynslu eða upplifun fólks af henni í samtímanum. Söfnunin er unnin í samstarfi við verkefnið Lifandi hefðir hjá Stofnun Árna Magnússonar. og meistaranema í þjóðfræði við Háskóla Íslands. Á grundvelli svara við spurningaskránni, og viðtala sem tekin hafa verið, skapast fræðilegar undirstöður til að vinna að hugsanlegri tilnefningu laufabrauðshefðarinnar á lista UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf heims.
Lesa meira
Fermingar og ungmennavígslur
Tilgangurinn með þessari spurningaskrá er að safna upplýsingum um fermingarsiði fyrr og nú og hliðstæðar athafnir, sem hér eru kallaðar einu nafni ungmennavíglsur. Fyrst og fremst er verið að spyrja um þína eigin reynslu, þótt einnig sé áhugavert að fá upplýsingar um það sem þú hefur heyrt hjá öðrum. Sumar spurninganna passa kannski ekki við þína reynslu en þá svarar þú aðeins eftir því sem við á. Ýmis fróðleikur sem tengist efninu en ekki er spurt um sérstaklega mætti gjarnan fá að fljóta með.
Lesa meira
Minningar úr héraðsskólum
Þjóðminjasafn Íslands sendir nú út spurningaskrá um minningar úr héraðsskólum og öðrum heimavistarskólum til sveita á unglingastigi. Söfnunin byggir eingöngu á frásögnum fyrrverandi nemenda og er því fyrst og fremst verið leita eftir minningum fólks.
Lesa meira