Fréttir

Opnun nýrrar sýningar í Jónshúsi í Kaupmannahöfn:

Heimili Ingibjargar og Jóns. Miðstöð Íslendinga í Kaupmannahöfn 1852-1879

11.12.2018

Fimmtudaginn 6. desember sl. var opnuð í Jónshúsi í Kaupmannahöfn sýning á heimili Ingibjargar Einarsdóttur og Jóns Sigurðssonar. Heimili þeirra sem var á 3. hæð hússins hefur verið endurgert á grundvelli heimilda um líf þeirra hjóna í Kaupmannahöfn, byggingasögulegra rannsókna á íbúðinni sjálfri auk sagnfræðilegra rannsókna á heimilislífi um miðbik 19. aldar í Kaupmannahöfn.

Á sýningunni er sjónum beint að heimili hjónanna sem miðstöðvar Íslendinga og þætti Jóns Sigurðssonar í sjálfstæðisbaráttunni. Þjóðminjasafn Íslands vann að endurgerð sýningarinnar fyrir hönd Alþingis. Sýningaropnunin var fjölsótt af Íslendingum sem búsettir eru í Kaupmannahöfn og einnig sungu þeir kórar sem hafa aðstöðu í Jónshúsi jólalög.