Fréttir

Hinsegin dagar í Þjóðminjasafni Íslands

8.8.2019

Hinsegin dagar eru á næsta leyti og í ár verða sérstakir fræðsluviðburðir Hinsegin daga  haldnir í samstarfi við Þjóðminjasafn Íslands.

Fræðsluviðburðir Hinsegin daga fara fram dagana 8. - 15. ágúst í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins.  Nánar um fyrirlestrana má finna hér og á heimasíðu Hinsegin daga. Aðgangur að fyrirlestrunum er ókeypis.

Hinsegin

Þjóðminjasafn Íslands býður einnig uppá hinsegin vegvísi, Regnbogaþráðinn um grunnsýningu safnsins, Þjóð verður til – menning og samfélag í 1200 ár. Í Regnbogaþræðinum er fjallað um hinsegin sögu á Íslandi með það að markmiði að miðla upplýsingum um hinsegin líf og tilveru, sýna hvernig hugmyndir um kyn og kynhneigð taka á sig ýmsar myndir á ólíkum tímum og ekki síst að spyrja spurninga, skoða hið ósagða og hvetja gesti til gagnrýninnar hugsunar. 

Þjóðminjasafn Íslands býður gestum á viðburðum Hinsegin daga á safninu aðgangsmiða á safnið með 25% afslætti eða á 1.500 kr. í stað 2.000 kr. 

https://www.thjodminjasafn.is/syningar-vidburdir/vidburdir/hinsegin-dagar/