Fréttir
  • Hagthenkir-tilnefningar

Nesstofa við Seltjörn tilnefnd til Viðurkenningar Hagþenkis

10.2.2023

Tíu fræðirit voru tilnefnd til Viðurkenningar Hagþenkis. Nesstofa við Seltjörn var einnig tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki fræðirita. 

Nesstofa við Seltjörn
Nesstofa við Seltjörn
eftir Þorstein Gunnarsson, sem Þjóðminjasafnið gaf út árið 2022 hefur verið tilnefnd til Viðurkenningar Hagþenkis ásamt níu öðrum fræðiritum. Nessstofa við Seltjörn var einnig tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna á síðasta ári.

Viðurkenning Hagþenkis verður veitt við hátíðlega athöfn um miðjan mars og felst í sérstöku viðurkenningarskjali ásamt verðlaunafé að upphæð 1.250.000 kr.

Hagþenkir tilnefning


Viðurkenningarráð Hagþenkis er skipað fimm félagmönnum til tveggja ára í senn og í því eru: Ársæll Már Arnarson, Halldóra Kristinsdóttir, Sigurður Sveinn Snorrason, Súsanna Margrét Gestsdóttir og Svanhildur Óskarsdóttir. Verkefnastjóri ráðsins er Friðbjörg Ingimarsdóttir framkvæmdastýra Hagþenkis.



Að þessu tilefni munu höfundar tilnefndra rita kynna bækur sínar laugardaginn 25. febrúar kl. 13-15 í Borgarbókasafninu í Grófinni.

Eftirfarandir höfundar og rit eru tilnefnd:

Anna María Bogadóttir. Jarðsetning. Angústúra. Persónulegt og vekjandi rit um manngerð rými sem hvetur til yfirvegunar um uppbyggingu og niðurbrot.

Ásdís Ólafsdóttir og Ólafur Kvaran. Abstrakt geómetría á Íslandi 1950–1960. Veröld. Vandað og fallegt rit um byltingaráratug í íslenskri myndlist. Ítarleg umfjöllun um tímabilið með myndum af einstökum verkum listamanna.

Ástríður Stefánsdóttir, Guðrún V. Stefánsdóttir og Kristín Björnsdóttir (ritstj.). Aðstæðubundið sjálfræði. Líf og aðstæður fólks með þroskahömlun. Háskólaútgáfan. Hagnýtt fræðirit um þann einfalda en oft hunsaða sannleik að allir þjóðfélagsþegnar eigi að njóta grundvallarmannréttinda. Tímamótaverk.

Daníel Bergmann. Fálkinn. Anda. Falleg og vönduð bók sem gefur góða innsýn í lifnaðarhætti fálkans og náið samband hans við íslensku rjúpuna, prýdd einstæðum ljósmyndum.

Helgi Þorláksson. Á sögustöðum. Bessastaðir, Skálholt, Oddi, Reykholt, Hólar, Þingvellir. Vaka-Helgafell. Mikilvæg bók sem teflir niðurstöðum nýlegra rannsókna fram gegn hefðbundinni sýn á sögustaði.

Hjalti Pálsson. Byggðasaga Skagafjarðar. I.­–X. bindi. Sögufélag Skagfirðinga. Yfirgripsmikið fjölbindaverk, skrifað af þekkingu og stutt margvíslegum heimildum ásamt fjölda ljósmynda.

Kristín Svava Tómasdóttir. Farsótt. Hundrað ár í Þingholtsstræti 25. Sögufélag. Saga Farsóttarhússins myndar ramma utan um óvæntar frásagnir og sjónarhorn sem skerpt er á með vönduðu myndefni.

Ragnar Stefánsson. Hvenær kemur sá stóri? Að spá fyrir um jarðskjálfta. Skrudda. Vandað fræðirit um jarðhræringar á Íslandi stutt viðamiklum mæligögnum og frábærum skýringarmyndum og kortum.

Stefán Ólafsson. Baráttan um bjargirnar. Stjórnmál og stéttabarátta í mótun íslensks samfélags. Háskólaútgáfan. Víðtæk og vel skrifuð þjóðfélagsfræðileg greining á þróun lífskjara og samfélagsgerðar á Íslandi.

Þorsteinn Gunnarsson. Nesstofa við Seltjörn. Saga hússins, endurreisn og byggingarlist. Þjóðminjasafn Íslands. Ítarlegt yfirlitsrit þar sem lesendur fá glögga innsýn í aldarfar og atburði í kaupbæti með sögu Nesstofu fyrr og nú.