Fréttir

Sýningasalir safnsins áfram lokaðir vegna samkomutakmarkana

20.10.2020

Sýningarsalir Þjóðminjasafns Íslands við Suðurgötu 41 og í Safnahúsinu við Hverfisgötu 15 verða áfram tímabundið lokaðir vegna hertra sóttvarnaraðgerða og samkomutakmarkana. 

Skrifstofur Varðveislu- og rannsóknamiðstöðar Þjóðminjasafns Íslands að Tjarnarvöllum 11, Hafnarfirði og Ljósmyndasafns Íslands að Vesturvör 16-20 í Kópavogi verða einnig lokaðar gestum.

Hér á heimasíðu safnsins má finna allar upplýsingar um safnið og netföng starfsmanna. Einnig er hægt að hringja í skiptiborð safnsins í 530-2200 eða senda póst á thjodminjasafn@thjodminjasafn.is.

Við hlökkum til að sjá ykkur þegar við opnum aftur.