Fréttir
  • 20230718-2H1A1768

Útgáfa: Á elleftu stundu / I den ellevte time eftir Kirsten Simonsen

Uppmælingaferðir dönsku arkitektaskólanna til Íslands

11.8.2023

Eftir Kirsten Simonsen. Bókin kom út í kjölfar samnefndrar sýningar sem haldin var í Þjóðminjasafninu veturinn 2022-2023.

Þjóðminjasafn Íslands gaf nýverið út þessa áhugaverðubók í kjölfar samnefndrar sýningar. Bókin er ríkulega myndskreytt og veitir einstaka innsýn í fjölbreytta íslenska byggingararfleifð.

Í yfir þúsund ár voru torfhús helstu híbýli Íslendinga en upp úr 1970 höfðu þau lokið því hlutverki sínu og einungis var þá búið í örfáum torfbæjum. Engar alhliða áætlanir lágu fyrir um varðveislu torfhúsa og því var komið að endalokum þeirra fáu bæja sem eftir stóðu.

Það var íslenskur nemi í arkitektúr í Kaupmannahöfn sem hvatti danska arkitektaskóla til að hefja skrásetningu á úrvali íslenskra torfhúsa áður en það yrði um seinan. Úr varð að skólarnir skipulögðu fjölda námsferða til Íslands í náinni samvinnu við Þjóðminjasafn Íslands. Nemar og kennarar ferðuðust um landið á 8. áratugnum til að mæla upp og teikna einstakan byggingarstíl íslenskra torfhúsa og annarra bygginga sem hætt var við að hyrfu og yrðu gleymskunni að bráð.

Rannsóknarleiðangrarnir urðu til þess að opna augu margra fyrir nauðsyn þess að varðveita íslenska byggingararfleifð.

Veturinn 2022-2023 var haldin sýning í Þjóðminjasafninu sem byggði á rannsóknverkefni Kirsten Simonsen, Á elleftu stundu. Til grundvallar verkefninu lágu gögn sem urðu til við ferðalög dönsku arkitektanemanna.

Bók sem allir sem hafa áhuga á íslenskri byggingarlist þurfa að eignast.

Bókin er 296 síður og er ríkulega myndskreytt.

Hér má nálgast bókina í vefverslun Þjóðminjasafnsins.