Um safnið

Um safnið

26.4.2016

Þjóðminjasafn Íslands er vísinda- og þjónustustofnun í eigu íslenska ríkisins. Því er ætlað að vera miðstöð þjóðminjavörslu og rannsókna á menningarsögulegum minjum.

Hlutverk Þjóðminjasafnsins er að auka og miðla þekkingu á menningararfi þjóðarinnar frá upphafi til vorra daga og stuðla að því að sem flestir geti haft gagn og gaman af sögu og minjum lands og þjóðar. Meginhluti safnhússins hýsir grunnsýningu Þjóðminjasafnsins við Suðurgötu: Þjóð verður til – menning og samfélag í 1200 ár.

Skrifstofur safnsins eru á eftirfarandi stöðum:

Fjármál og þjónusta

Sviðstjóri fjármála- og þjónustusviðs er Þorbjörg Gunnarsdóttir, thorbjorg@thjodminjasafn.is. Skrifstofan er á Suðurgötu 41 og er opin virka daga frá kl. 8 til 16.

Húsasafn

Sérfræðingur húsasafns er Alma Sigurðardóttir, alma.sigurdardottir@thjodminjasafn.is. Skrifstofa safnsins er á Tjarnarvöllum 11 í Hafnarfirði og er opin virka daga frá kl. 8 til 16.

Ljósmyndasafn Íslands

Framkvæmdastjóri safneignar er Ágústa Kristófersdóttir, agusta.kristofersdottir@thjodminjasafn.isLjósmyndasafnið er með aðsetur í Vesturvör 16-20 í Kópavogi og er skrifstofan opin virka daga frá kl. 8 til 16.

Munasafn og Þjóðháttasafn

Skrifstofa Munasafns er í varðveislu- og rannsóknamiðstöð safnsins á Tjarnarvöllum 11 í Hafnarfirði og er opin virka daga frá kl. 8 til 16. Framkvæmdastjóri safneignar er Ágústa Kristófersdóttir, agusta.kristofersdottir@thjodminjasafn.is.