Sýningar framundan

Með Ísland í farteskinu. Ljósmyndir, úrklippur og munir úr fórum Pike Ward

Ljósmyndir, úrklippur og munir úr fórum Pike Ward

  • 7.9.2019 - 12.1.2020, Myndasalur - Þjóðminjasafnið Suðurgötu

Englendingurinn Pike Ward var kunnur maður á Íslandi um aldamótin 1900. Hann gerði um tíma út frá Hafnarfirði en ferðaðist einnig um landið og keypti fisk til útflutnings. Pike Ward kenndi Íslendingum að nýta minni fisk og staðgreiddi með peningum sem var nýlunda hér á landi. Smáfiskurinn var við hann kenndur og nefndur Vorðfiskur eða Vorðari.

Ward var áhugaljósmyndari og tók myndir af daglegu lífi og fáförnum slóðum áður en Íslendingar hófu að taka myndir af áhugamennsku. Í því felst sérstaða mynda hans. Heildarsafn ljósmynda Ward frá Íslandi, bæði í úrklippubókunum, albúmi og lausum stereoskópmyndum telur rúmlega 1500 myndir. Langdvalir Ward hér á landi leiddu til þess að hann hóf að safna margvíslegum gripum sem voru einkennandi fyrir Ísland. Alls eru nú 379 gripir úr hans eigu í vörslu safnsins.

Úrval ljósmynda, úrklippa og gripa úr fórum Pike Ward er nú til sýnis í Myndasal Þjóðminjasafnsins.