Fyrirlestur: Torf til bygginga
Torfhleðslur mismunandi eftir landshlutum
Þriðjudaginn 11. október kl. 12 flytur Sigríður Sigurðardóttir, lektor við Háskólann á Hólum fyrirlestur sem ber heitið, Torf til bygginga. Fyrirlestrinum verður einnig streymt á YouTube rás safnsins.
Í tilefni af sýningunni Á elleftu stundu sem er til sýnis í Þjóðminjasafni Íslands um þessar mundir og veitir innsýn í umfangsmikla og ómetanlega skráningu torfbæja hér á landi verður Sigríður Sigurðardóttir lektor við Háskólann á Hólum með fyrirlestur sem ber heitið, Torf til bygginga.
Í fyrirlestrinum mun Sigríður fjalla um hvernig torf var valið, tekið og meðhöndlað og því síðan hlaðið upp, en aðferðin var mismunandi eftir landshlutum.
Fyrirlesturinn fer fram 11. október í fyrirlestrarsal safnsins klukkan 12:00 og verður einnig í beinu streymi á YouTube.
Eins og áður segir er fyrirlesturinn í tilefni af sýningunni Á elleftu stundu sem sýnir ómetanlegt heimildarefni um íslenska torfbæinn.
Árið 1973 hóf danski arkitektinn Poul Nedergaard Jensen, kennari við Arkitektaskólann í Árósum, samstarf við Konunglegu dönsku listaakademíuna í Kaupmannahöfn og Þjóðminjasafn Íslands um skrásetningu á íslenskum torfbæjum áður en það yrði of seint. Þessi byggingartegund sem þróast hafði með þjóðinni í meira en þúsund ár var að miklu leyti horfinn og þeir torfbæir sem eftir voru stóðu frammi fyrir eyðileggingu.
Hádegisfyrirlestra Þjóðminjasafns Íslands
Fyrirlestrar Þjóðminjasafns Íslands tengjast sýningum, rannsóknum eða öðru starfi Þjóðminjasafnsins og fara fram í fyrirlestrasal safnsins við Suðurgötu.
Aðgöngumiði í safnið gildir. Ókeypis fyrir handhafa árskorts og ókeypis fyrir börn að 18 ára aldri. Árskort kostar 2.500 kr. og gildir á allar sýningar og viðburði í Þjóðminjasafni Íslands.