Fyrirlestur: Hjartað
Í tilefni af sýningunni Mannamyndir í Ljósmyndasal Þjóðminjasafns Íslands fjallar María Kjartansdóttir ljósmyndari um mannamyndir út frá sjónarhóli myndlistarinnar. Fyrirlestrinum fer fram þriðjudaginn 5. október kl. 12 í fyrirlestrasal safnsins og verður einnig streymt hér á YouTube.
Verk Maríu sýna oft mannverur í samspili við náttúruna og er gjarnan nokkurs konar könnun á möguleikum hvers staðar. Ljósmyndir hennar eru draumkenndar í frásögn sinni en jafnframt hreinskilnar í samkennd með viðfangsefninu.
Fyrirlesturinn er þriðji í röð hádegisfyrirlestra Þjóðminjasafnsins haustið 2021.
María útskrifaðist með MFA gráðu frá Glasgow Shool of Art árið 2007. Síðan þá hefur hún búið og starfað í London, Glasgow, París og nú síðast í Reykjavík og sýnt ljósmyndun og myndbandalist víða um heim. Nýjasta verkefni hennar er stuttmyndin og ljósmyndasyrpan Sprungur.
Aðgöngumiði í safnið gildir. Ókeypis fyrir handhafa árskorts og ókeypis fyrir börn að 18 ára aldri. Árskort kostar 2.000 kr. og gildir á allar sýningar og viðburði í Þjóðminjasafni Íslands.
Verið öll velkomin.