Skráning safngripa – Sarpur
Þriðjudaginn 3. september flytur Þorvaldur Böðvarsson skráningarstjóri í Þjóðminjasafni erindi í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands.
Vönduð skráning safngripa og annarra safnaðfanga er ein helsta forsendan fyrir árangursríku starfi safna og kemur við sögu á öllum stigum safnastarfs. Í gegnum tíðina hafa verið þróaðar ýmsar aðferðir við að halda utan um safnkostinn skráningarlega séð. Í fyrirlestrinum verður farið yfir skráningarfyrirkomulag aðfanga hjá Þjóðminjasafninu frá upphafi og fram til vorra daga, gerð tilraun til að gefa mynd af þróuninni og hvernig tæknin hefur gjörbylt allri umgjörð og vinnu á þessu sviði.
Sarpur er heiti á upplýsingakerfi sem nær yfir forrit og gagnasafn þess. Gagnasafnið samanstendur af upplýsingum um muni, myndir, fornleifar, hús, myndlist, hönnun, þjóðhætti og örnefni. Alls eru um 50 söfn og stofnanir aðilar að Sarpi.
Skoða má gagnasafn Þjóðminjasafnsins á www.sarpur.is
https://www.youtube.com/watch?v=5ebOGARqohc">
Verið öll velkomin.