Eldri fyrirlestrar Þjóðminjasafns
Velkomin í Stofu. Nýtt fjölskyldu- og fræðslurými í Þjóðminjasafni
Þriðjudaginn 11. febrúar kl. 12 flytur Jóhanna Bergmann safnkennari í Þjóðminjasafni Íslands erindi í fyrirlestrasal safnsins.
Í Þjóðminjasafni Íslands stendur yfir endurnýjun á aðstöðu fyrir börn og fjölskyldur og aðra gesti til að brjóta upp heimsóknina með leik, grúski, lestri, mátun búninga og fleiru skemmtilegu. Aðstaðan, sem áður var kölluð Skemmtimennt, heitir núna Stofa og verður stærri, fjölbreyttari og tengdari sýningarsölum en áður var.
Aðgöngumiði í safnið gildir. Ókeypis fyrir handhafa árskorts.
Árskort kostar 2.000 kr. og gildir á allar sýningar og viðburði á Þjóðminjasafninu við Suðurgötu og í Safnahúsinu við Hverfisgötu.