Leiðsögn: Hjátrú og galdrar

Álfa- og draugatrú hefur alla tíð verið sterk á Íslandi. Í þessari leiðsögn eru skoðaðir gripir sem tengjast hjátrú og göldrum, meðal annars verndargripir frá landnámsöld og ýmsir gripir sem eiga sér sögu tengda álfum og öðru huldufólki. Leiðsögnin verður á dagskrá alla fimmtudaga í sumar kl. 11.

Safnkostur Þjóðminjasafnsins er gestum til fróðleiks, skemmtunar og örvunar. Heimsókn í safnið er því skemmtileg og fræðandi fyrir alla fjölskylduna. Við bjóðum gestum margs konar leiðir til að upplifa sýningar safnsins og íslenska sögu. Hægt er að ganga um safnið án fylgdar, taka þátt í fjölskylduviðburðum eða fá leiðsögn hjá sérfróðu starfsfólki.

Aðgöngumiði í safnið gildir.

Aðgöngumiði í Þjóðminjasafnið kostar 2.500 kr. fyrir fullorðna og gildir í eitt ár, en frítt er fyrir börn yngri en 18 ára. Allir hafa því nægan tíma til að njóta þess sem safnið hefur upp á að bjóða og þið eruð velkomin eins oft og þið viljið. Aðgöngumiðinn gildir að öllum sýningum og viðburðum á vegum safnsins.

Verið velkomin samferða í sumar.


Sumardagskrá