Leiðsögn: Hamfarir og drepsóttir

Í leiðsögninni er vöngum velt um uppruna Íslendinga, farsóttir og náttúrvá. Farið verður yfir áhrif umhverfisins á heilsufar og útbreiðslu sjúkdóma og hvernig hamfarir og nálægð við náttúruna hafa alla tíð sett mark sitt á lífsbaráttu Íslendinga. Leiðsögnin er í boði alla þriðjudaga kl. 11.

Safnkostur Þjóðminjasafnsins er gestum til fróðleiks, skemmtunar og örvunar. Heimsókn í safnið er því skemmtileg og fræðandi fyrir alla fjölskylduna. Við bjóðum gestum margs konar leiðir til að upplifa sýningar safnsins og íslenska sögu. Hægt er að ganga um safnið án fylgdar, taka þátt í fjölskylduviðburðum eða fá leiðsögn hjá sérfróðu starfsfólki.

Aðgöngumiði í safnið gildir. 

Aðgöngumiði í Þjóðminjasafnið kostar 2.500 kr. fyrir fullorðna og gildir í eitt ár, en frítt er fyrir börn yngri en 18 ára. Allir hafa því nægan tíma til að njóta þess sem safnið hefur upp á að bjóða og þið eruð velkomin eins oft og þið viljið. Aðgöngumiðinn gildir að öllum sýningum og viðburðum á vegum safnsins.

Verið velkomin samferða í sumar.


Sumardagskrá