Viðburðir framundan
  • Fyrirlestrarröð: Eru söfn einhvers virði?

Eru söfn einhvers virði? Fyrirlestraröð í samstarfi við Háskóla Íslands

  • 22.9.2023, 12:00 - 13:00, Fyrirlestrasalur Þjóðminjasafns Íslands

Næsti fyrirlestur verður föstudaginn 22. september kl: 12:00, en þá flytur Ragna Kemp Haraldsdóttir, lektor í upplýsingfræði við HÍ erindið: Nútíma skjalastjórn og langtímavarsla opinberra skjala.

Fyrirlesturinn er hluti af spennandi fyrirlestraröð sem nefnist Eru söfn einhvers virði? og er haldin á vegum Miðstöðvar einsögurannsókna við Sagnfræðistofnun HÍ, Þjóðminjasafns Íslands og námskeiðsins Einkaskjöl: Vitnisburður hina valdalausu? við námsbraut í sagnfræði.

Fyrirlestrarnir verða fluttir á föstudögum milli kl. 12 og 13 í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns Íslands.

Fundarstjórar verða dr. Anna Heiða Baldursdóttir, dr. Sólveig Ólafsdóttir og Sigurður Gylfi Magnússon, prófessor í menningarsögu.

Eru söfn einhvers virði? Dagskrá vetrarins:

Liðnir viðburðir

25. ágúst:
Stjórnmál og söfn - Pólitískir gjörningar á undanförnum mánuðum
Sigurður Gylfi Magnússon prófessor í menningarsögu. 

1. september:
Einkaskjöl og opinber skjöl, skjalasöfn og stjórnskipan. Héraðsskjalasafn Kópavogs í ljósi sögunnar
Hrafn Sveinbjarnarson sagnfræðingur og forstöðumaður héraðsskjalasafns Kópavogs.

8. september:
Draumur sem brást - hvers vegna á þjóðin ekkert leiklistar- eða tónlistarsögusafn?
Dr. Jón Viðar Jónsson leikhúsfræðingur.

15. september
Hvar býr þekkingin?
Orri Vésteinsson, prófessor í fornleifafræði við HÍ.

Dagskráin fram undan:

22. september

Nútíma skjalastjórn og langtímavarsla opinberra skjala
Ragna Kemp Haraldsdóttir, lektor í upplýsingfræði við HÍ.

29. september
Söfn og kennsla: Þurfamannaævir
Ragnheiður Kristjánsdóttir, prófessor í sagnfræði við HÍ.

6. október
Miðlun menningararfs. (Ó)Þarfar rannsóknir á söfnum 
Dr. Anna Heiða Baldursdóttir, nýdoktor við Landbúnaðarsafnið á Hvanneyri.

Hlé í tvær vikur

27. október
Óhjálplega safnið
Sigurjón Baldur Hafsteinsson, prófessor í safnafræði við HÍ.

3. nóvember
Einkasafn og einsaga - tengsl safna og vísinda
Sigurður Gylfi Magnússon prófessor í menningarsögu við HÍ.

10. nóvember
Er hægt að leggja Þjóðminjasafnið niður?
Dr. Kristján Mímisson, sérfræðingur í miðlun menningarsögu á Þjóðminjasafni Íslands.

17. nóvember
Er Hafnafjörður týndur? Gögn gamla Hafnarfjarðar
Dr. Sólveig Ólafsdóttir, nýdoktor við HÍ.

24. nóvember
Hver vegna í ósköpunum ættum við að halda upp á þetta? Bókasafn Íslenska esperanto-sambandsins og saga alþjóðahyggju á Íslandi
Benedikt Hjartarson, prófessor í almennri bókmenntafræði og menningarfræði við HÍ.

1. desember
Samantekt og umræða

Öll velkomin. 

160_1_text