Viðburðir framundan

Fjölskylduleiðsögn í Safnahúsinu

  • 3.3.2019, 14:00 - 15:00, Safnahúsið við Hverfisgötu

Sunnudaginn 3. mars kl. 14 verður fjölskylduleiðsögn í Safnahúsinu við Hverfisgötu. Gengið verður um sýninguna Sjónarhorn - ferðalag um íslenskan myndheim sem geymir allskonar forvitnilega gripi úr sex mismunandi söfnum.

Þema leiðsagnarinnar er dýrin eins og þau birtast í gripum sýningarinnar. Til dæmis verða skoðaðir hlutir úr dýraafurðum, dýr á ljósmyndum, teikningum og málverkum og styttur af dýrum. Sjá má fugla- og eggjateikningar, kynjaskepnur í norrænni goðafræði og fleira eins og til dæmis uppstoppaða rjúpu og fálka á hraunnibbu.

Verið öll velkomin, enginn aðgangseyrir er að leiðsögninni.