Viðburðir framundan

Fjölskylduleiðsögn með Stjörnu-Sævari

  • 25.4.2019, 11:00 - 12:00, Safnahúsið við Hverfisgötu

Á sumardaginn fyrsta gengur Stjörnu-Sævar með gestum um sýningarsali í Safnahúsinu og segir frá ýmsu merkilegu um jörðina og sólkerfið út frá völdum myndum og gripum sem má sjá á sýningunni Sjónarhorn.

Leiðsögnin er fyrir krakka og fullorðnir fylgifiskar hafa áreiðanlega líka gaman af henni. Verið öll velkomin, leiðsögnin er ókeypis.