Viðburðir framundan

Sérfræðileiðsögn með Goddi

  • 21.2.2021, 14:00, Myndasalur - Þjóðminjasafnið Suðurgötu

Goddur, Guðmundur Oddur Magnússon, listamaður og prófessor við Listaháskóla Íslands fer með gesti um sýninguna Teiknað fyrir þjóðina – Myndheimur Halldórs Péturssonar sunnudaginn 21. febrúar kl. 14.

Sýningin er yfirlitssýning á verkum teiknarans Halldórs Péturssonar (1916 – 1977) og þar eru sýndar teikningar, skissur og fullunnin verk hans frá barnæsku til æviloka. Í marga áratugi var handbragð Halldórs alltumlykjandi í íslensku samfélagi og hann telst einn ástsælasti teiknari þjóðarinnar. Goddur ætlar að stinga sér inn í þá veröld og draga fram áhugaverða þætti í verkum Halldórs.  

Aðgöngumiði í safnið gildir. Ókeypis fyrir handhafa árskorts og frítt fyrir börn yngri en 18 ára. Árskort kostar 2.000 kr. og gildir á allar sýningar og viðburði í Þjóðminjasafni Íslands.

Ný reglugerð um samkomutakmarkanir leyfir allt að 150 gesti í söfnum (með hliðsjón af fermetrafjölda). Það er því nóg pláss fyrir alla á safninu. Við biðjum gesti að virða þær sóttvarnareglur sem eru í gildi. Grímuskylda og 2 metra reglan gildir á safninu.