Viðburðir framundan

Leiðsögn: Elizabeth M. Walgenbach sérfræðingur hjá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

  • 13.2.2021, 14:00 - 14:45, Safnahúsið við Hverfisgötu

Elizabeth M. Walgenbach sérfræðingur hjá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, veitir leiðsögn um sýninguna Sjónarhorn. Elizabeth mun sérstaklega fjalla um þau verk á sýningunni sem tengjast íslenskri handrita- og menningarsögu.
Á sýningunni eru fjórtán handrit frá ýmsum tímum sem hafa að geyma lögbókina Jónsbók, þar á meðal hina svokölluðu Skarðsbók Jónsbókar sem er með glæsilegustu handritum sem gerð voru á Íslandi á fjórtándu öld.

Sjónarhorn er áhrifamikil sýning um sjónrænan menningararf þjóðarinnar. Í sjö álmum eru jafn mörg sjónarhorn sem tengja saman ólík listaverk og áhugaverða muni, þvert á efni og tímabil. Sýningin er samstarfsverkefni Þjóðminjasafnsins, Listasafns Íslands, Náttúruminjasafns Íslands, Þjóðskjalasafns Íslands, Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns og Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og skartar margvíslegum gripum úr safnkosti þeirra.

Auk Sjónarhorna eru tvær sérsýningar í húsinu, Ganýmedes eftir Bertel Thorvaldsen á vegum Listasafns Íslands og Óravíddir, orðaforðinn í nýju ljósi á vegum Stofnunar Árna Magnússonar.

Aðgöngumiði í safnið gildir. Ókeypis fyrir handhafa árskorts og frítt fyrir börn yngri en 18 ára. Árskort kostar 2.000 kr. Við biðjum gesti að virða þær sóttvarnareglur sem eru í gildi. Grímuskylda og 2 metra reglan gildir á safninu.

Verið öll velkomin.