Viðburðir framundan

Leiðsögn: Ógnvaldarnir

  • 21.8.2021, 14:00 - 15:00, Þjóðminjasafnið á Suðurgötu

Laugardaginn 21. ágúst kl. 14 ræða Dr. William R. Short og Reynir A. Óskarson við gesti safnsins um rannsóknir á bardagaaðferðum víkinga. Í leiðsögninni munu þeir fjalla um rannsóknaraðferðirnar, sem eru að mörgu leiti óhefðbundnar, óvæntar niðurstöður og hvernig þær geta varpað nýju ljósi á safngripina. Leiðsögnin verður á ensku.

William og Reynir eru meðlimir í Hurstwic félaginu í Bandaríkjunum sem hefur staðið fyrir rannsóknum á bardagaaðferðum í yfir 20 ár. Í september gefur félagið út bókina Men of Terror: A comprehensive analysis of Viking Combat þar sem gerð er grein fyrir niðurstöðum rannsóknanna. 

Aðgöngumiði í safnið gildir. Ókeypis fyrir handhafa árskorts og frítt fyrir börn yngri en 18 ára. Árskort kostar 2.000 kr. og gildir á allar sýningar og viðburði í Þjóðminjasafni Íslands.

Grímuskylda er á safninu. Grímuskylda á þó ekki við um börn sem fædd eru 2006 og síðar.  Hámarksfjöldi fólks í sama rými er 200. Fjöldatakmörkun og nálægðarmörk taka ekki til barna sem fædd eru 2016 eða síðar. 

Verið öll velkomin.