Viðburðir framundan
  • Ef garðálfar gætu talað

Listamannaspjall: Ef garðálfar gætu talað

Sýningunni lýkur 3. mars.

  • 25.2.2024, 13:00 - 14:00, Myndasalur - Þjóðminjasafnið Suðurgötu

Sunnudaginn 25. febrúar taka ljósmyndararnir Sigríður Marrow og Þórdís Erla Ágústsdóttir á móti gestum í Myndasal og leiða þá um sýningu sína Ef garðálfar gætu talað. Sama dag kl. 14. flytur Svanhildur Óskarsdóttir erindi um Maríu klæði sem er meðal verka á sýningunni Með verkum handanna sem gestum er velkomið að hlýða á að loknu listamannaspjallinu. 

Sýningin hefur hlotið verðskuldaða athygli. Frábært tækifæri fyrir áhugasama til að ræða við listamennina um verkin, hvað býr þeim að baki og hvernig sýningin öll er hugsuð. 

Hér má nálgast umfjöllun RUV um sýninguna og hlusta á viðtal við Sigríði og Þórdísi í Víðsjá

Ef garðálfar gætu talað

Í kjarrinu við rætur Laugarvatnsfjalls var byggð sem teljast verður einstök á landsvísu. Hjólhýsi, gerð til að þjóta um vegi og staldra stutt við urðu hjól-laus, staðbundin, hluti af umhverfinu. Þau stóðu þétt saman og hýstu fólk sem hafði þarna sumardvöl og veitti sköpun sinni útrás með öðrum hætti en heimafyrir.

Sem búsetuform var hjólhýsabyggðin visst millistig. Þorp en samt ekki. Sveit en samt ekki. Nema hvort tveggja væri. Náttúran mest fordekruð í blómapottum og svo hin alræmda, stundum misskilda en ávallt ómissandi mannlega náttúra. Nándin við grannana, sem var mun meiri en í hefðbundnum sumarhúsahverfum. Fólk hefur meiri ánægju en ama hvert af öðru.

Ljósmyndararnir Þórdís Erla Ágústsdóttir og Sigríður Marrow heimsóttu fyrir nokkrum árum hjólhýsabyggðina á Laugarvatni þar sem þær í þrjú sumur mynduðu mannlífið á staðnum. Sýningin er afrakstur þeirrar ljósmyndaskráningar og sýnir myndir af fólki sem naut samvista, hlúði að sjálfu sér og sinnti umhverfi sínu.

Sýningarstjóri/ Curator: Bryndís Erla Hjálmarsdóttir
Texti / Text: Guðrún Eva Mínvervudóttir
Þýðandi / Translation: Meg Matich
Uppsetning / Installation: Helgi Már Kristinsson
Prentun ljósmynda / Printing photographs: Ívar Brynjólfsson

Frá síðasta listamannaspjalli

Thordis-Sigridur2F

Thordis-SigridurSafnanott