Viðburðir framundan

MyndMál í Safnahúsinu

  • 25.4.2019, 13:00 - 16:30, Safnahúsið við Hverfisgötu

Á sumardaginn fyrsta sýna myndlistar-og hönnunarnemar við Listaháskóla Íslands ásamt ritlistarnemendum við Háskóla Íslands bókverk í lestrarsal Safnahússins.

Verkin eru afrakstur tveggja námskeiða þar sem unnið var að gerð texta og mynda af fjölbreyttu tagi ásamt því að kanna snertifleti mynd- og ritmáls. Sýningin stendur yfir milli kl. 13 og 16:30.

Á 3. hæð Safnahússins er einnig sýning á bókverkum úr safneign Landsbókasafns Íslands, þar sem dregin eru fram áhugaverð dæmi um skapandi prentverk, bókband og tilraunir með form bókarinnar allt aftur til loka 19. aldar og fram til dagsins í dag.