Viðburðir framundan

Sýningaopnun: Úr mýri í málm

  • 30.4.2022, 14:00, Hornið - Þjóðminjasafnið Suðurgötu

Þjóðminjasafn Íslands býður til opnunar á sýningunni Úr mýri í málm laugardaginn 30. apríl kl. 14. Sýningin er unnin í samstarfi við Hurstwic LLC og Eiríksstaði. Verið öll velkomin.

Á öldum áður unnu Íslendingar járn úr mýrum. Það var gert með rauðablæstri sem stundaður var í töluverðu mæli fram eftir miðöldum. Þá fór að draga verulega úr járngerð hér á landi og mun rauðablástur hafa lagst endanlega af á 17. eða 18. öld. Við það gleymdist margt varðandi þetta forna handverk og enn er ekki að fullu ljóst hvernig rauðablásturinn fór fram.

Fræðimenn hafa lengi reynt að svara spurningum um rauðablástur á Íslandi, t.d. hvernig mýrarrauðinn var unninn? Hvernig voru blástursofnarnir uppbyggðir? Hvernig voru þeir einangraðir og kynntir upp? Hversu gott járn var hægt að vinna úr íslenskum mýrarrauða?

Á sýningunni Úr mýri í málm er farið yfir rannsóknir á járngerð á Íslandi. Tilraunir á rauðablæstri sem fram fóru á Eiríksstöðum í Haukadal verða kynntar en þá var, í fyrsta skipti í margar aldir, járn brætt þar sem einungis var notaður íslenskur efniviður.

Gestir sýningarinnar fá að kynnast öllu járngerðarferlinu, allt frá orkuöflun (skógarhöggi og kolagerð), hráefnisvinnslu (mýrartöku), gerð járnbræðsluofna til bræðslu járns (rauðablásturs).

Sýningin er unnin í samstarfi við Hurstwic LLC og Eiríksstaði sem stóðu að tilraunaverkefni með rauðablástur árið 2019.

Sýningarhöfundar - Ármann Guðmundsson, Eva Kristín Dal, William R. Short

Verkefnisstjórn - Bryndís Erla Hjálmarsdóttir, Hrönn Konráðsdóttir

Þakkir - Hustwick, Margrét Hrönn Hallmundsdóttir, Reynir Óskarsson

Sýningatímabil - 30.4.2022 - 29.1.2023

 

Tilraunakennd fornleifafræði: Kenningar sannreyndar

Þriðjudaginn 3. maí kl. 12 flytja Dr. William R. Short og Reynir A. Óskarson frá Hurstwic hópnum erindi í fyrirlestrasal safnsins. Fyrirlesturinn fjallar um tilraunkennda fornleifafræði við rannsóknir á fortíðinni, notast verður við landnámstíma-járngerðartilraunir Hurstwic hópsins sem grunn í þeim útskýringum.