Viðburðir framundan

Leiðsögn: Þjóð verður til - Menning og samfélag í 1200 ár

  • 28.6.2020, 14:00 - 14:45, Þjóðminjasafnið á Suðurgötu
  • 5.7.2020, 14:00 - 14:45, Þjóðminjasafnið á Suðurgötu
  • 12.7.2020, 14:00 - 14:45, Þjóðminjasafnið á Suðurgötu
  • 19.7.2020, 14:00 - 14:45, Þjóðminjasafnið á Suðurgötu
  • 26.7.2020, 14:00 - 14:45, Þjóðminjasafnið á Suðurgötu
  • 2.8.2020, 14:00 - 14:45, Þjóðminjasafnið á Suðurgötu
  • 9.8.2020, 14:00 - 14:45, Þjóðminjasafnið á Suðurgötu
  • 16.8.2020, 14:00 - 14:45, Þjóðminjasafnið á Suðurgötu
  • 23.8.2020, 14:00 - 14:45, Þjóðminjasafnið á Suðurgötu
  • 30.8.2020, 14:00 - 14:45, Þjóðminjasafnið á Suðurgötu

Þjóðminjasafn Íslands býður gestum í leiðsögn á íslensku um sýninguna Þjóð verður til. Menning og samfélag í 1200 ár alla sunnudaga kl. 14 í sumar. Á grunnsýningu Þjóðminjasafnsins er leitast við að draga upp skýra og heildstæða mynd af menningarsögu Íslendinga. Ýmsum aðferðum í sýningargerð er beitt til að miðla gestum fjölbreyttum menningararfi þjóðarinnar. Sögunni er skipt nokkuð jafnt í sjö tímabil, varpað er ljósi á ólík tímaskeið í sögu lands og þjóðar; jafnt framfarir sem erfiða tíma. 

Safnkostur Þjóðminjasafnsins er gestum til fróðleiks, skemmtunar og örvunar. Heimsókn í safnið er því skemmtileg og fræðandi fyrir alla fjölskylduna. Við bjóðum gestum margs konar leiðir til að upplifa sýningar safnsins og íslenska sögu. Hægt er að ganga um safnið án fylgdar, taka þátt í fjölskylduviðburðum eða fá leiðsögn hjá sérfróðu starfsfólki. Verið velkomin samferða í sumar.

Aðgöngumiði í safnið gildir. Ókeypis fyrir handhafa árskorts og ókeypis fyrir börn að 18 ára aldri. Árskort kostar 2.000 kr. og gildir á allar sýningar og viðburði á Þjóðminjasafninu við Suðurgötu og í Safnahúsinu við Hverfisgötu.