COVID-19

Samkomutakmarkanir vegna Covid-19

29.3.2021

Í ljósi hertra sóttvarnaraðgerða vegna Covid-19 faraldursins og þeirra samkomutakmarkana sem nú eru í gildi verður hámarksfjöldi gesta í Þjóðminjasafni Íslands 10 manns í hverju hólfi. Fjöldatakmarkanir eiga ekki við um börn fædd 2015 og síðar. Grímuskylda og tveggja metra reglan er í gildi á safninu. Allt viðburðahald fellur niður til og með 15. apríl 2021.

Reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar tók gildi 25. mars og gildir til og með 15. apríl 2021.