Sýningar í gangi
Ný sýning á Torgi
Sýningin Veraldlegar eigur Þórðar bónda var opnuð föstudaginn 15. maí á Torginu.
Á sýningunni er ljósi varpað á fábreyttar eigur almennings á nítjándu öld. Venja var að skrifa upp eigur látinna en á sýningunni eru sýndir munir samskonar þeim sem bóndinn Þórður Jónsson á Kistufelli í Lundarreykjadal í Borgarfirði átti. Þá má sjá nákvæma uppskrift af eigum hans samkvæmt uppskriftabók sýslumanns frá 1883. Meðal gripa í eigu Þórðar voru spýtnarusl og hrífuhöfuð, belgpeysa og vestisgarmur.
Sýningarhöfundur er Anna Heiða Baldursdóttir sagnfræðingur en sýningin er samstarfsverkefni Þjóðminjasafns Íslands og Háskóla Íslands.