Bækur og rit

Þættir úr sögu ljósmyndunar á Íslandi 1970-1990

  • 2013 - Steinar Örn Atlason

Steinar Örn Atlason

Út er komin skýrsla Þjóðminjasafns Íslands, Þættir úr sögu ljósmyndunar á Íslandi 1970-1990 eftir Steinar Örn Atlason.

 Hefðbundin ljósmyndasaga hefur að mörgu leyti verið bundin listsögulegum viðmiðum en í skýrslunni er leitað annarra leiða til að fjalla um sögu íslenskrar ljósmyndunar og sjónum beint að ólíkum félagslegum sviðum innan greinarinnar: ljósmyndaklúbbum, atvinnu- og áhugamönnum, og ljósmyndasöfnum.

Sýningin Ljósmyndun á Íslandi 1970-1990 í Myndasal Þjóðminjasafnsins sýnir myndir 14 ljósmyndara frá tímabilinu sem skýrslan fjallar um.

Bókin er til sölu í Safnbúð Þjóðminjasafns Íslands og þar er einnig hægt að panta hana í síma 530 2203 eða senda tölvupóst til: vala.olafsdottir@thjodminjasafn.is