Má bjóða þér til Stofu? 17.6.2019 14:00 - 16:00 Þjóðminjasafnið á Suðurgötu

Þjóðminjasafn Íslands býður til opnunar Stofu; nýs fjölbreytts fjölskyldu- og fræðslurýmis fyrir alla gesti. Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra opnar Stofuna á Þjóðhátíðardaginn 17. júní kl. 14. Um er að ræða opnun fyrsta áfanga en Stofa á eftir þróast áfram og fyllast af spennandi viðfangsefnum.

 

Barnadagskrá á 17. júní 17.6.2019 14:00 - 17:00 Þjóðminjasafnið á Suðurgötu

Í tilefni 75 ára afmælis lýðveldisins 17. júní kl. 14 opnar Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, barna og fjölskyldurýmið Stofuna í Þjóðminjasafni Íslands. Stofa er nýtt rými fyrir börn og fjölskyldur, skólahópa og alla forvitna gesti. Hún breytist eftir þörfum úr stofu í baðstofu, rannsóknarstofu eða kennslustofu.