Bein útsending frá jólaskemmtun Þjóðminjasafnsins 6.12.2020 14:00 - 14:45 Þjóðminjasafnið á Suðurgötu

Heimsókn jólasveinafjölskyldunnar á Þjóðminjasafnið er orðin fastur liður í aðventudagskrá safnsins. Tröllahjónin Grýla og Leppalúði eru vön að kíkja í heimsókn nokkrum dögum áður en synir þeirra, jólasveinarnir koma til byggða og hitta börnin. Vegna sérstakra aðstæðna þessi jól verða viðburðirnir í beinni útsendingu frá YouTube rás safnsins.