- Næsta færsla
- Fyrri færsla
Formsýn Ralphs Hannam
Júní 2012
Ralph Hannam. RH 5.
Ralph Hannam fæddist í Englandi árið 1915. Hann kom fyrst hingað til lands með breska herliðinu árið 1940 og kynntist þá tilvonandi eiginkonu sinni, Elínu Guðlaugsdóttur. Árið 1948 flutti Ralph alfarið til Íslands og bjó síðan í Reykjavík ásamt fjölskyldu sinni. Hann starfaði lengst af sem skrifstofumaður hjá Almennum tryggingum. Ralph gaf Ljósmyndasafni Íslands í Þjóðminjasafni frumkópíur sínar árið 2010 en hann lést árið eftir.
Ralph Hannam var einn af stofnendum Ljósmyndafélags Reykjavíkur árið 1953. Hann tók þátt í sýningu ljósmyndaáhugamanna í Listvinasalnum 1952, sýningu Ferðafélags Íslands sama ár, sýningu Ljósmyndafélags Reykjavíkur 1954 og Félags áhugaljósmyndara 1957. Þá var haldin sýning á verkum hans á vegum Árbæjarsafns árið 1991.
Myndir sínar tók Ralph Hannam á árabilinu 1948 til 1954, eingöngu í svart-hvítu. Nálgun sinni á ljósmyndun lýsir hann svo í óbirtu viðtali við Ingu Láru Baldvinsdóttur: „Hvaða verkfæri hefur maður til þess að vinna með við ljósmyndun? Það er fyrst og fremst lýsing. Gráskalinn frá hvítu yfir í svart. Sjálfur var ég hrifinn af því að hafa hvítan bakgrunn og svart mótíf á móti. Síðan er það myndbyggingin, gullinsniðið, að það sé jafnvægi í myndinni. Loks er það myndefnið Human interest, Human figures og Human activities. Sérstaklega þegar þetta myndar skemmtileg form. Og skurður á myndum hefur mikið að segja. Helmingur af góðri ljósmynd er heppni.“
Ljósmyndin Timbur er skýrt birtingarform á myndsýn Ralphs Hannam. Myndbyggingin er tilkomumikil. Geómetrísk form timbursins hverfast um manninn við vinnu sína þar sem hann stendur undir timburberginu. Sólskinið kallar fram ljósa skálínu niður eftir fremri timburstaflanum sem vex niður í bjartan flöt neðst til hægri. Fjölin sem maðurinn heldur á myndar nokkurs konar brú milli hinna geómetrísku og lífrænu forma í myndfletinum. Myndin er gott dæmi um áhrif abstrakt expressjónisma hjá áhugaljósmyndurum í Reykjavík á árunum milli 1950 og 1960.
Mikil gróska var í starfsemi áhugaljósmyndara á Íslandi á sjötta áratug 20. aldar. Ljósmyndafélag Reykjavíkur, síðar Félag áhugaljósmyndara, varð snemma aðili að alþjóðlegum samtökum áhugaljósmyndara, Fédération International de l´Art Photographique (FIAP), sem stóðu fyrir sýningahaldi áhugamanna og útgáfu bóka með myndum víðsvegar að úr heiminum. Ljósmyndin Timbur var ásamt myndum fimm annarra Íslendinga valin til sýningar á þriðja ljósmyndatvíæringi FIAP (III Bienal Internacional de arte fotografico) í Barcelona árið 1954 og í kjölfarið birt í árbók FIAP árið 1956.