Þjóðminjasafn Íslands

Valmynd


Þú ert hér Forsíða - Sýningar & viðburðir - Aðrar sýningar - Ljósmynd mánaðarins

Ljósmynd mánaðarins

  • 2021

    júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

  • 2020

    desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

  • 2019

    desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

  • 2018

    desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, febrúar, janúar

  • 2017

    nóvember, október, ágúst, júlí, júní, apríl, mars, febrúar, janúar

  • 2016

    desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

  • 2015

    desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

  • 2014

    desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

  • 2013

    desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

  • 2012

    desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar


Ljósmynd mánaðarins
  • 01_januar2021_ljosmyndmanadarins_Mbl1-14259
  • Næsta færsla
  • Fyrri færsla

Ekki er allt sem sýnist

JANÚAR 2021

31.12.2020

Ljósmyndari: Arnþór Björnsson.

Mbl-14259

Sumar myndir skapa slík hughrif að þær greipast í minnið. Þessi mynd er ein þeirra og hefur fylgt mér lengi. Fyrsta sem kom upp í hugann við að sjá hana voru frásagnir af afa mínum, Halldóri Jónssyni bónda, og flutningi hans á bátum yfir heiðar. Á búskaparárum hans á Skálmarnesmúla í Barðastrandarsýslu keypti hann sexæringinn Breið vestur í Bolungarvík, reri honum inn Djúpið og kom honum fyrir þar til vetraði og hjarn lagðist yfir. „Setti Halldór Breið yfir Kollafjarðarheiði við sjötta mann. Á heiðinni gerði óveður að þeim félögum, og urðu þeir að skilja þar við Breið. Eftir nokkurn tíma gerði blota. Gekk Halldór þá til heiðar við annan mann. Fundu þeir Breið og hvolfdu honum með þeim hætti, að moka undan annar (svo) i síðunni, þangað til þeir gátu velt honum yfir. Síðar gerði hjarn og fór Halldór þá enn til heiðar og flutti Breið til bæjar. Gekk sú ferð ágætlega.“1

Þegar afi minn fluttist síðar búferlum veturinn 1919-20 frá Skálmarnesmúla að Arngerðareyri við Ísafjarðardjúp „setti hann bátinn sinn fram allan Skálmardal, yfir Skálmardalsheiði og niður í Ísafjarðarbotn. Þar geymdi hann bátinn uns ísa leysti af firðinum og hægt var að komast á honum á sjó allt að Arngerðareyri.“2 Það vann með honum í þessum flutningum að þetta var með allra mestu snjóavetrum.

Flutningar báta á hjarni yfir vetur hafa líklega verið fátíðir. Samt hafa þeir skilið eftir örnefni á heiðum uppi. Á Fossheiði gamalli þjóðleið, sem er á milli Arnarfjarðar og Barðastrandar eru tvö örnefni sem vísa til skipaflutninga. Sjömannabani er klettahjalli á suðurbrún heiðarinnar og er sagt að þar hafi sjö menn farist við flutning á bát í hríðarbyl.3 Skipahvammur er annað örnefni á sömu leið, en það er lágur aflíðandi hvammur niður í Arnarbýlisdal.4

Lestur mynda getur blekkt og skapað hughrif sem eiga sér ekki stoð í sjálfu myndefninu. Hugrenningar mínar út frá myndinni reyndust vera mislestur. Það er ekki verið að flytja bát yfir heiði og há fjöllin eru ekki á Vestfjörðum. Birgir Þórisson skipasérfræðingur sem var beðinn um að skoða myndina rak augun í að spjald sem fest er framan á bátinn hefði átt að vera við afturstafn. Það hvarflaði að honum að báturinn væri ætlaður til rannsókna á hálendisvötnum og verið væri að flytja hann á staðinn að vetrarlagi.

Þegar myndin barst á Þjóðminjasafnið með safni pappírsmynda frá Morgunblaðinu var hún í möppu með tímasetningunni maí 1965. Birgir fann myndina auðveldlega við leit á tímarit.is með leitarorðinu vatnamælinga. Myndin birtist í Morgunblaðinu 27. júlí 1963. Þetta er því sumarmynd en ekki vetrar. Hún er tekin í rannsóknarleiðangri Sigurjóns Rist vatnamælingamanns á Öskjuvatni. Vatnamælingabáturinn er hér á barmi Vítis, sem sést í bakgrunninum. Ferðin með bátinn að Öskjuvatni tók fleiri daga og meðan á ferðinni og dvölinni stóð hrepptu leiðangursmenn hríðarveður og stundum var stórhríð. Sumar sumarnæturnar fór frostið niður í 6 gráður.5

Tapar myndin stöðu sinni sem táknmynd um baráttu mannsins við náttúruöflin þegar þessi vitneskja liggur fyrir?

Inga Lára Baldvinsdóttir

 


1) Gullkistan. Endurminningar Árna Gíslasonar um fiskveiðar við Ísafjarðardjúp árin 1880-1905. Arngr. Fr. Bjarnason bjó undir prentun. Ísafjörður 1944, s. 160-161.

2) Hávarður Friðriksson. Halldór Jónsson óðalsbóndi, Arngerðareyri. Íslendingaþættir Tímans 20. september 1968.

3) Jónína Hafsteinsdóttir. „Hvar á landinu er Sjömannabani? “ Vísindavefurinn. 15. apr. 2009. Vefsíða. 26. nóv. 2020. <http://visindavefur.is/svar.php?id=52262>.

4) http://www.bardastrandarhreppur.net/Lei%C3%B0ir/leikvallar-og-morudalsvegur/

5) Öskuvatn er 220 m djúpt. Hitnað hefur í Víti. Frá leiðangri Sigurjóns Rist. Morgunblaðið 27. Júlí 1963, s. 3 og 19.


Aðalvalmynd

  • Sýningar & viðburðir
    • Grunnsýning
      • Þjóð verður til
        • Tímabil
    • Sérsýningar
      • Eldri sýningar
      • Sýningar í gangi
      • Sýningar framundan
    • Aðrar sýningar
      • Hús Þjóðminjasafns
      • Ljósmynd mánaðarins
      • Vefsýningar
        • Minningarsjóður Ásu G Wright
    • Viðburðir
      • Fyrirlestrar
      • Eldri fyrirlestrar Þjóðminjasafns
      • Viðburðir framundan
  • Þjónusta
    • Fyrir gesti
      • Algengar spurningar
      • Aðgengi
      • Leiðsögn fyrir hópa
      • Fjölskyldan
      • Kaupa miða
      • Opnunartími og verð
      • Verslun og veitingar
    • Fræðsla
      • Skólar
        • Leikskólar
        • Grunnskólar
        • Gullkista safnfræðslunnar
        • Framhaldsskólar
        • Háskólar
        • Á eigin vegum
        • Fræðslupakkar fyrir grunnskóla
        • Fræðsluefni
        • Fræðslupakkar
      • Bókun skólahópa
      • Stafrænt fræðsluefni
        • Börn á safninu
        • Gamalt og gott
        • Fyrirlestrar
        • Safnið í sófann
    • Salarleiga
      • Fyrirlestrasalur Þjóðminjasafninu við Suðurgötu
      • Leiga á Myndasal fyrir móttökur
    • Önnur þjónusta
      • Beiðni um aðgang að gripum til skoðunar
      • Beiðni um lán á safnkosti
      • Beiðni um sýnatöku á safnkosti
      • Beiðni um lán á safngrip til sýninga
      • Bóka- og heimildasafn
      • Eftirtökur af ljósmyndum hjá Ljósmyndasafni Íslands
      • Leita í safneign
      • Viltu afhenda safninu muni eða myndir?
      • Afhending gagna úr fornleifarannsóknum
  • Stofnunin
    • Um safnið
      • Fréttir
      • Hlutverk og stefnur
      • Lög og reglugerðir
      • Saga safnsins
      • Skipurit
      • Minjar og Saga
    • Starfsemi
      • Fjármál og þjónusta
        • Bóka- og heimildasafn
        • Skjalasafn
      • Húsasafn
      • Ljósmyndasafn Íslands
        • Gjaldskrá
        • Myndasöfn
        • Rannsóknir
        • Skráning
        • Varðveisla mynda
        • Þekkir þú myndina
      • Munasafn
        • Beiðni um aðgang að gripum til skoðunar
        • Afhending gagna úr fornleifarannsóknum
        • Beiðni um sýnatöku á safnkosti
        • Beiðni um lán á grip til sýninga
        • Forvarsla
      • Þjóðháttasafn
      • Rannsóknarstöður
      • Starfsfólk
      • Laus störf
    • Útgáfa
      • Bækur og rit
      • Handbækur
      • Skýrslur
  • Vefverslun
  • En
    • Museum information
      • Visit
        • FAQ
        • Book your ticket now
        • Opening hours and prices
        • Accessibility
        • Café and shops
        • Location
        • Guided Tour
        • Family Room
      • Exhibitions
        • Permanent Exhibitions
        • Temporary Exhibitions
        • Previous Exhibitions
      • About the Museum
        • Historic Buildings
        • Photographs and Prints
        • History and Role
      • Applications
        • Application for access to Museum objects for examination
        • Application for sampling
    • Upcoming events
    • Web store
    • IS
    • Audio Guide
  • Leita

Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins

Þjóðminjasafn Íslands Suðurgötu 41, 102 Reykjavík
Sími: 530-2200
thjodminjasafn@thjodminjasafn.is
Opið alla daga frá kl. 10-17.
Persónuvernd hjá Þjóðminjasafni Íslands
  • Instagram
  • Facebook
Opnunartími og verð

Þetta vefsvæði byggir á Eplica