Þjóðminjasafn Íslands

Valmynd


Þú ert hér Forsíða - Sýningar & viðburðir - Aðrar sýningar - Ljósmynd mánaðarins

Ljósmynd mánaðarins

  • 2021

    júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

  • 2020

    desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

  • 2019

    desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

  • 2018

    desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, febrúar, janúar

  • 2017

    nóvember, október, ágúst, júlí, júní, apríl, mars, febrúar, janúar

  • 2016

    desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

  • 2015

    desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

  • 2014

    desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

  • 2013

    desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

  • 2012

    desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar


Ljósmynd mánaðarins
  • Næsta færsla
  • Fyrri færsla

Panoramapóstkort

Júlí 2016

7.7.2016

Hin klassíska stærð póstkorta er ca. 10 x 15 sentimetarar og hefur verið það frá upphafi. Alþjóða póstmálastofnunin hefur fest þá stærð í regluverk sitt í upphafi og var ekki ginkeypt fyrir öðrum stærðum. Þrátt fyrir það hafa verið gerðar nokkrar tilraunir með aðrar stærðir m.a. að hafa kortin af panoramagerð, það er að segja ílöng.

Elsta panoramakortið sem varðveitt er á Þjóðminjasafni Íslands er gefið út af O. Johnson & Kaaber. Myndin sem prýðir kortið er tekin frá vestri yfir gömlu Reykjavík. Hún er væntanlega tekin árið 1905, það má m.a. sjá á því að húsið við Amtmannstíg 1 er í byggingu og einnig Austurstræti 14, sem hýsti í um áratug Hótel Reykjavík. Kortið hefur verið brotið saman á tveimur stöðum, svo það skiptist í þrjá jafnstóra helminga, hver fyrir sig er um 10 x 15 sentimetrar að stærð. Aftan á miðhlutanum eru áprentaðar línur fyrir upplýsingar um viðtakanda kortsins. Höfundur myndarinnar er óþekktur.

Það næstelsta sem varðveitt er, er frá því um 1910. Myndin sýnir Vestmanneyjar, með Heimaklett lengst til vinstri og byggðina í eynni hægra megin. Aldur myndarinnar má greina af því að ekki er búið að byggja hafnargarðana, en það var gert  árið 1914, aftur á móti eru mörg hús sem byggð voru á fyrsta áratug 20. aldarinnar greinanleg á myndinni. Undir Heimakletti sjást margir bátar á sjónum. Aftan á þessu korti hafa verið prentaðar línur lengst til hægri. Ekki verður sagt með vissu hver gæti hafa tekið þessa mynd. Það kann að vera Lárus Gíslason en myndin er frá starfsárum hans í Eyjum.

Frá því um miðja 20. öldina eru síðan varðveittar tvær seríur með myndefni í lit. Önnur inniheldur tvö panoramakort með myndefni eftir Sigurhans Vigni frá Reykjavík, en hin syrpan var gefin út af KEA með myndefni frá Norðurlandi. Eyþór Sigmundsson sem stofnsetti fyrirtækið Laxakort segist hafa verið „fyrstur á markaðinn með svokölluð panoramakort“1, en þetta sannar að svo var ekki. Allt bendir hins vegar til að hann hafi verið sá fyrsti sem framleiddi slík kort á sínum starfsárum um 1990. Nokkrar tilraunir höfðu verið gerðar áður með þessa stærð hér á landi eins og dæmin sýna. Panoramapóstkort eru skemmtileg undantekning á hefðbundinni stærð póstkorta. Samt sem áður virðist hefðbundna stærðin alltaf eiga traustan sess.

Pk-2015-4 og Pk2-4008

Kristín Halla Baldvinsdóttir

1 Morgunblaðið sunnudagur 8. janúar 1995, bls. 22.


Aðalvalmynd

  • Sýningar & viðburðir
    • Grunnsýning
      • Þjóð verður til
        • Tímabil
    • Sérsýningar
      • Eldri sýningar
      • Sýningar í gangi
      • Sýningar framundan
    • Aðrar sýningar
      • Hús Þjóðminjasafns
      • Ljósmynd mánaðarins
      • Vefsýningar
        • Minningarsjóður Ásu G Wright
    • Viðburðir
      • Fyrirlestrar
      • Eldri fyrirlestrar Þjóðminjasafns
      • Viðburðir framundan
  • Þjónusta
    • Fyrir gesti
      • Algengar spurningar
      • Aðgengi
      • Leiðsögn fyrir hópa
      • Fjölskyldan
      • Kaupa miða
      • Opnunartími og verð
      • Verslun og veitingar
    • Fræðsla
      • Skólar
        • Leikskólar
        • Grunnskólar
        • Gullkista safnfræðslunnar
        • Framhaldsskólar
        • Háskólar
        • Á eigin vegum
        • Fræðslupakkar fyrir grunnskóla
        • Fræðsluefni
        • Fræðslupakkar
      • Bókun skólahópa
      • Stafrænt fræðsluefni
        • Börn á safninu
        • Gamalt og gott
        • Fyrirlestrar
        • Safnið í sófann
    • Salarleiga
      • Fyrirlestrasalur Þjóðminjasafninu við Suðurgötu
      • Leiga á Myndasal fyrir móttökur
    • Önnur þjónusta
      • Beiðni um aðgang að gripum til skoðunar
      • Beiðni um lán á safnkosti
      • Beiðni um sýnatöku á safnkosti
      • Beiðni um lán á safngrip til sýninga
      • Bóka- og heimildasafn
      • Eftirtökur af ljósmyndum hjá Ljósmyndasafni Íslands
      • Leita í safneign
      • Viltu afhenda safninu muni eða myndir?
      • Afhending gagna úr fornleifarannsóknum
  • Stofnunin
    • Um safnið
      • Fréttir
      • Hlutverk og stefnur
      • Lög og reglugerðir
      • Saga safnsins
      • Skipurit
      • Minjar og Saga
    • Starfsemi
      • Fjármál og þjónusta
        • Bóka- og heimildasafn
        • Skjalasafn
      • Húsasafn
      • Ljósmyndasafn Íslands
        • Gjaldskrá
        • Myndasöfn
        • Rannsóknir
        • Skráning
        • Varðveisla mynda
        • Þekkir þú myndina
      • Munasafn
        • Beiðni um aðgang að gripum til skoðunar
        • Afhending gagna úr fornleifarannsóknum
        • Beiðni um sýnatöku á safnkosti
        • Beiðni um lán á grip til sýninga
        • Forvarsla
      • Þjóðháttasafn
      • Rannsóknarstöður
      • Starfsfólk
      • Laus störf
    • Útgáfa
      • Bækur og rit
      • Handbækur
      • Skýrslur
  • Vefverslun
  • En
    • Museum information
      • Visit
        • FAQ
        • Book your ticket now
        • Opening hours and prices
        • Accessibility
        • Café and shops
        • Location
        • Guided Tour
        • Family Room
      • Exhibitions
        • Permanent Exhibitions
        • Temporary Exhibitions
        • Previous Exhibitions
      • About the Museum
        • Historic Buildings
        • Photographs and Prints
        • History and Role
      • Applications
        • Application for access to Museum objects for examination
        • Application for sampling
    • Upcoming events
    • Web store
    • IS
    • Audio Guide
  • Leita

Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins

Þjóðminjasafn Íslands Suðurgötu 41, 102 Reykjavík
Sími: 530-2200
thjodminjasafn@thjodminjasafn.is
Opið alla daga frá kl. 10-17.
Persónuvernd hjá Þjóðminjasafni Íslands
  • Instagram
  • Facebook
Opnunartími og verð

Þetta vefsvæði byggir á Eplica