Tvítökur Kaldals
Desember 2016
Ljósmyndari Jón Kaldal (Lpr-2004-133)
Haustið 1954 sendi Jón Kaldal þessa mynd á sýningu á vegum alþjóðasamtakanna F.I.A.P. (Fédération Internationale de l'Art Photographique) sem haldin var í Barcelona á Spáni um mánaðartíma 23. september til 24. október. Jón var í hópi nokkurra íslenskra ljósmyndara sem þar sýndu. Hinir voru Gunnar Pétursson, Ralph Hannam, Þorsteinn Jósepsson og Hjálmar R. Bárðarson. Það vekur athygli að hann var eini atvinnumaðurinn í hópnum, en hinir voru meðal fremstu áhugamanna hérlendis á þessum tíma. Þetta var önnur tveggja mynda Kaldals á sýningunni. Hin var mynd af Hans A. Müller sem birt hefur verið í úrvali portrettmynda Kaldals og er á sýningu portrettmynda hans nú í Þjóðminjasafni. Samkvæmt sýningarskrá hafði þessi mynd einfallega heitið Study. Það heiti er einnig skrifað á bakhlið þessa eintaks hennar ásamt nafni Kaldals. Myndin er árituð af Kaldal undir myndfleti í hægra horni. Hún barst Ljósmyndasafni Íslands með efni frá Hjálmari R. Bárðarsyni. Á árabilinu 1939 til 1954 tók Jón Kaldal þátt í nokkrum samsýningum erlendis auk þeirrar í Spáni m.a. í Danmörku, Belgíu, Króatíu og Brasilíu.
Konan á myndinni er Elín Hallgrímsdóttir, en konur sem Kaldal tók listrænar myndir af eru oft óþekktar. Annað gildir um karlmennina sem hann gerði listrænar myndir af, þeir voru oftast nær vel þekktir í þjóðfélaginu og því auðþekkjanlegir bæði þá og nú. Kaldal var með ýmiss konar tilraunamennsku við að taka tvær myndir af sömu fyrirsætu og koma fyrir á einni og sömu mynd. Við það beitti hann fleiri en einni aðferð. Þá var önnur myndin gjarnan vangamynd en hin tekin á andlitið á ská líkt og á þessari mynd. Kaldal gerði fleiri myndir með þessari tækni sem nefnist double exposure, sem gæti lagst út sem tvítaka á íslensku. Þá er tekið tvisvar ofan í sömu filmu.
Hvort tveggja sýningarþáttaka Jóns Kaldals í Barcelona og tilraunamennska hans við myndatökur eru til vitnis um lifandi áhuga Kaldals á ljósmyndun.
Kristín Halla Baldvinsdóttir