Eldri sýningar

Ef garðálfar gætu talað | Sýningunni lýkur 3. mars

  • 16.9.2023 - 3.3.2024, Myndasalur - Þjóðminjasafnið Suðurgötu
  • 16.9.2023, 14:00 - 17:00, Myndasalur - Þjóðminjasafnið Suðurgötu
  • Ljósmyndasýning frá hjólhýsahverfinu við Laugarvatn

Í kjarrinu við rætur Laugarvatnsfjalls var byggð sem teljast verður einstök á landsvísu. Hjólhýsi, gerð til að þjóta um vegi og staldra stutt við urðu hjól-laus, staðbundin, hluti af umhverfinu. Þau stóðu þétt saman og hýstu fólk sem hafði þarna sumardvöl og veitti sköpun sinni útrás með öðrum hætti en heimafyrir.

Sem búsetuform var hjólhýsabyggðin visst millistig. Þorp en samt ekki. Sveit en samt ekki. Nema hvort tveggja væri. Náttúran mest fordekruð í blómapottum og svo hin alræmda, stundum misskilda en ávallt ómissandi mannlega náttúra. Nándin við grannana, sem var mun meiri en í hefðbundnum sumarhúsahverfum. Fólk hefur meiri ánægju en ama hvert af öðru.

Ljósmyndararnir Þórdís Erla Ágústsdóttir og Sigríður Marrow heimsóttu fyrir nokkrum árum hjólhýsabyggðina á Laugarvatni þar sem þær í þrjú sumur mynduðu mannlífið á staðnum. Sýningin er afrakstur þeirrar ljósmyndaskráningar og sýnir myndir af fólki sem naut samvista, hlúði að sjálfu sér og sinnti umhverfi sínu.

Á sama tíma verður sýningin Sumardvalarstaðurinn Laugarvatn á Vegg. Sýndar verða myndir frá Laugarvatni sem eru í eigu Ljósmyndasafns Íslands. Hér má kynna sér þá sýningu.

Sýningarstjóri/ Curator: Bryndís Erla Hjálmarsdóttir
Texti / Text: Guðrún Eva Mínvervudóttir
Þýðandi / Translation: Meg Matich
Uppsetning / Installation: Helgi Már Kristinsson
Prentun ljósmynda / Printing photographs: Ívar Brynjólfsson
Innrömmun / Framing: Listamenn
Grafísk hönnun / Graphic design: Lóa Yona Zoe Fenzy
Prentun texta / Printing text: Þríbjörn ehf

Þakkir / Acknowledgement:
Allir fyrrum íbúar hjólhýsabyggðarinnar á Laugarvatni
Hrafnhildur Bjarnadóttir og Ólafur Ragnar Elísson
Myndstef
Þjóðminjasafnið
Linda ÁsdísardóttirAndri Heiðar Sigurþórsson 

160_1_text