Fyrirsagnalisti

Hjálmar R. Bárðason

Hjálmar R. Bárðarson í svarthvítu 29.10.2011 - 8.4.2012 Myndasalur - Þjóðminjasafnið Suðurgötu

Hjálmar R. Bárðarson (1918-2009) fyrrverandi siglingamálastjóri var afkastamikill áhugaljósmyndari og gaf út fjölda bóka með myndum af landi og þjóð. Á sýningunni eru nýjar eftirtökur svarthvítra mynda úr safni hans, bæði landslagsmyndir og listrænar myndir frá tímabilinu 1932 til 1988.

Lesa meira
 

Skipulag og óreiða 29.10.2011 - 5.1.2012 Þjóðminjasafnið á Suðurgötu

Laugardaginn 29. október 2011 var opnuð sýning á teikningum Ólafar Oddgeirsdóttur á Torgi í Þjóðminjasafni Íslands. Frá því að Ólöf Oddgeirsdóttir lauk námi frá málaradeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1994 hefur hún unnið að eigin myndlist, starfað við myndlistarkennslu og stundað nám í listfræði við Háskóla Íslands.  

Lesa meira
 

Þetta er allt sama tóbakið! 29.9.2011 - 19.2.2012 Þjóðminjasafnið á Suðurgötu

Sýningunni er ætlað að varpa ljósi á sögu tóbaksnotkunar og baráttuna gegn henni allt frá upphafi á 17. öld fram til um 1990. Til þess eru notaðir gripir og ljósmyndir frá Þjóðminjasafni, gripir og gögn frá Krabbameinsfélaginu og tónlist sem notuð var í baráttunni gegn reykingum.

Lesa meira
 

Ljósmyndir Emils Edgrens 23.9.2011 - 23.10.2011 Þjóðminjasafnið á Suðurgötu

Emil Edgren (f. 1919) var hermaður og ljósmyndari fyrir kvikmyndaþjónustu bandaríska hersins í Evrópu. Í seinni heimstyrjöld var hann m.a. sendur til Íslands, en þar eyddi hann frístundum sínum í að ljósmynda mannlíf og umhverfi í Reykjavík og nágrenni.

Lesa meira
 

Ásfjall 16.6.2011 - 9.10.2011 Myndasalur - Þjóðminjasafnið Suðurgötu

Á sýningunni mátti sjá ljósmyndir sem Pétur Thomsen tók á og við Ásfjall í Hafnarfirði á árunum 2008-2011. Samhliða sýningunni kom út vandað rit með ljósmyndum Péturs, en bæði bókin og sýningin hlutu einróma lof gagnrýnenda og gesta. Pétur naut styrks frá Þjóðminjasafni Íslands við vinnu verkefnisins. 

Lesa meira
 

Ljósmyndir úr Íslandsheimsókn 1955 16.6.2011 - 2.10.2011 Veggur - Þjóðminjasafnið Suðurgötu

Á sýningunni má sjá ljósmyndir Kurt Dejmo sem hann tók í fyrri heimsókn sinni hingað til lands árið 1955.

Lesa meira
 

Ekki snerta jörðina! Leikir 10 ára barna 14.4.2011 - 31.12.2011 Þjóðminjasafnið á Suðurgötu

Verið velkomin á heimasíðu farandsýningarinnar Ekki snerta jörðina! Leikir 10 ára barna.

Lesa meira
 

Guðvelkomnir, góðir vinir! Útskorin íslensk horn 11.2.2011 - 31.12.2011 Bogasalur - Þjóðminjasafnið Suðurgötu

Á Íslandi hefur lengi verið sterk útskurðarhefð og aðallega var skorið í tré og horn. Íslenskur útskurður ber auðþekkt einkenni. Skyldleiki var með útskurði hér á landi og í Noregi á fyrri öldum. Það má sjá á útskurði í norskum trékirkjum og varðveittum íslenskum tréskurði. 

Lesa meira
 

Kistlar og Stokkar 15.1.2011 - 31.12.2011 Þjóðminjasafnið á Suðurgötu

Á sýningunni má sjá kistla útskorna með höfðaletri, sem er séríslensk leturgerð. Notkun höfðaleturs einskorðaðist nánast alla tíð við gripi úr tré, málmi og horni. Það er ekki fyrr en á 20. öld sem efnisnotkunin verður fjölbreyttari. Áletranir voru ýmist trúarlegs eðlis, vísur eða persónu-legar kveðjur, oft með nafni þess er átti gripinn og ártali.  

Lesa meira