Eldri sýningar

Að horfa með fingrunum

Sýning á verkum blindra og sjónskertra barna

  • 23.2.2008 - 9.3.2008, Þjóðminjasafnið á Suðurgötu

Á sýningunni eru þrívíð verk blindra og sjónskertra barna sem unnin voru í Myndlistaskólanum í Reykjavík veturinn 2007-2008, auk teikninga nokkurra nemenda skólans af verkum þeirra. Fjölbreytileg áferð, lykt og hljóð mismunandi efna voru nemendum og kennurum hvatning í leit sinni að nýjum og ævintýralegum möguleikum.

Ýmis áhöld og aðferðir voru nýtt til að gera leiðangurinn áhrifaríkari. Afraksturinn er þrívíð verk eða skúlptúrar sem spanna allt frá skringilegum skartgripum yfir í leiktæki og landsvæði.

Á landsvæðinu býr slöngutemjari sem stendur á gifspalli. Á hverju landi er einnig kennileiti (klettur) unnið úr jarðleir og er húsaskjól slöngutemjarans. Landsvæðum var umbreytt eftir þörfum íbúanna - girðingum bætt við, flaggstangir reistar og tjarnir myndaðar, einnig þurfti að huga að sérþörfum slöngubarnanna.

Tveir hópar 10-12 ára nemenda við skólann nýttu sér síðan hin ævintýralegu landsvæði og þrívíðu verk og unnu teikningar í tússi og blýöntum.

Kennarar voru Brynhildur Þorgeirsdóttir, Gerður Leifsdóttir og Margrét H. Blöndal.

Sýnendur: Ólafur Einar Ólafsson, Ásdís Ægisdóttir, Sandra Gunnarsdóttir, Snæfríður Ingadóttir, Margrét Helga Jónsdóttir, Íva Marín Adrichem, Áslaug Ýr Hjartardóttir og Vaka Rún Þórsdóttir

Kennarar teiknihópana voru Þorbjörg Þorvaldsdóttir og Hildur Bjarnadóttir.

Sýnendur: Jóna Diljá Jóhannsdóttir, Gestur Hallgrímsson, Alma Hafsteinsdóttir, Skjöldur Berg Hlynsson, Sigurbjörg Ásta Ólafsdóttir, Drífa Atladóttir, Helena Margrét Jónsdóttir, Ragnhildur Inga Magnúsdóttir, Helga Sóley Magnúsdóttir og Álfrún Axelsdóttir.

Verkefnið var unnið í samstarfi við foreldradeild Blindrafélagsins og
var stutt af fyrirtækjunum Kólusi og Nóa Síríusi.